Ég er 23 ára nemandi við Iðnskólann í Hafnarfirði og er að útskrifast núna í vor eftir að hafa lokið grunn námi í iðn- og vöruhönnun. Mig langar að komast í vinnu þar sem mér gefst tækifæri á því að hjálpa á hönnunarstofum eða öðrum svipuðum vettvöngum.
Mig langar að byggja upp meiri reynslu og þekkingu áður en ég fer út til áframhaldandi náms. Ég hef góðan grunn í vinnu með járn, tré, plast, stein og gler. Sérstaklega hef ég mikinn áhuga á ljósmyndun og myndvinnslu og hef verið að byggja upp kunnáttu á því sviði sjálfur í nokkur ár og með skólanum. (Photoshop/Illustrator) Ég hef að baki þónokkur hönnunarverkefni til að sýna fram á ferli mitt í hönnunarnáminu, þá bæði hvað varðar iðnhönnunina og hvað varðar myndvinnslu og ljósmyndun.
Ég er laus strax eftir útskrift sem er í miðjum maí mánuði.
Hægt er að hafa samband við mig í síma 866-0002 og í netfangið thorbuckley@gmail.com.