Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til
nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla- og
nýsköpunarfyrirtækja.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með
verkefninu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins.
Við síðustu úthlutun sjóðsins í desember var úthlutað 38.700.000 kr. til 50 verkefna en 305 umsóknir bárust.
Umsóknarfrestur er til 16. febrúar 2010.
Umsóknareyðublað má nálgast á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Markmið verkefnisins
er:
- Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.
- Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla og sprotafyrirtækjum.
Allar nánari upplýsingar eru að finna á vef
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.