27. janúar 2012

Skráning | Þátttaka í HönnunarMars 2012

Opnað hefur verið fyrir skráningar í dagskrá HönnunarMars sem fram fram dagana 22. - 25. mars 2012. Aðildarfélög Hönnunarmiðstöðvar vinna nú að dagskrá sinni og mörg þeirra standa fyrir samsýningu félagsmanna sinna. Frestur til að skrá viðburði rennur út miðvikudaginn 15. febrúar nk. .
26. janúar 2012

Sýning | Tizka, kjólar og korselett

Sýningin Tízka, kjólar og korselett opnar í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands laugardaginn 28. janúar kl. 15. Á sýningunni eru módelkjólar og ýmsir fylgihlutir eins og skór, hattar, hanskar og undirföt. Sýningarhöfundur er Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður. meira
26. janúar 2012

Hugmyndasamkeppni | Umhverfi Norræna hússins

Norræna húsið í samvinnu við Félag íslenskra Landslagsarkitekta og Hönnunarmiðstöð Íslands, efna til hugmyndasamkeppni um hönnun á svæði sem umlykur Norræna húsið. Markmið keppninnar er að fá raunhæfar og spennandi tillögur um hönnun og innihald þessa einstaka svæðið sem staðsett er í miðborg Reykjavíkur. Tillögum skal skila fyrir kl. 18:00 mánudaginn 12. mars 2012.

Idékonkurrence | Nordens Hus Omgivelser
.
26. janúar 2012

Hönnunarsamkeppni | Umbúðahönnun 2012

Prentsmiðjan Oddi og Félag Íslenskra Teiknara (FÍT) standa að opinni hönnunarsamkeppni umbúða úr kartoni og/eða bylgjupappír. Keppnin er öllum opin og lokaskil á tillögum er 23. febrúar 2012. meira
25. janúar 2012

Umsóknir óskast | From the coolest corner

Óskað er eftir umsóknum til þátttöku í norrænu skartgripasýningunni „From the Coolest Corner – Nordic Jewellery Art 2013". Umsóknarfrestur rennur út 1. apríl 2012. .
16. janúar 2012

Fyrirlestur | Katrín Ólína

Draumaflakkari; er flakkarinn í okkur sem ferðast viðstöðulaust um heima undirvitundarinnar. Hafnarhús, fimmtudag 19. janúar kl. 20. meira
16. janúar 2012

Málþing um höfundarétt

Hvernig má tryggja listamönnum sanngjarna hlutdeild í þeim arði sem notkun hugverka þeirra á netinu skapar? er yfirskrift málþings um höfundarétt sem BÍL gengst fyrir Laugardaginn 28. janúar kl. 14:00. Málþingið er haldið í tengslum við aðalfund BÍL, fer fram í Iðnó og er öllum opið. .
15. janúar 2012

PLAST | Framleiðslu- og vinnslumöguleikar

Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Plastprents fjallar um plast og hagnýtingu þess í iðnaði, í hádegiserindaröð Toppstöðvarinnar og Samtaka iðnaðarins um íslenska framleiðslu, hráefni og vinnslumöguleika, miðvikudaginn 25. janúar í Toppstöðinni. meira
13. janúar 2012

Góðir staðir | Leiðbeiningarit um uppbyggingu ferðamannastaða

Út er komið leiðbeiningaritið GÓÐIR STAÐIR. Ritinu er ætlað að vera hvatning til þeirra fjölmörgu aðila sem standa að uppbyggingu ferðamannastaða á Íslandi til að vanda til verka. .
13. janúar 2012

Sýning og málþing | Arkitektastofan Snøhetta

Framúrskarandi hönnunarafrek norsku arkitektastofunnar Snøhettu prýða vestursal Kjarvalsstaða sem opnaðar verður nk. laugardag 14. janúar kl. 16. Arkitektastofan Snøhetta hefur unnið til margra, alþjóðlegra viðurkenninga og staðið að gerð þekktra bygginga um heim allan. meira
12. janúar 2012

Stórfyrirtæki boða komu sína á HönnunarMars

Í tengslum við HönnunarMars ár hvert standa Hönnunarmiðstöð og Norræna húsið fyrir kaupstefnunni DesignMatch. Tvö finnsk stórfyrirtæki hafa þegar boðað komu sýna í ár til þátttköku í kaupstefnunni. Það eru Artek sem meðal annars framleiðir og selur húsgögn Alvars Aalto og hið þekkta húsbúnaðarfyrirtæki Iittala. .