Hönnuðurinn

9.9.2008

Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður

Thorunn Arnadottir designer with Clock New York Times birti fyrr á þessu ári grein um hægvirka hönnun (e. slow design) þar sem myndefni og umfjöllun um  hönnun Þórunnar Árnadóttur styður efni greinarinnar. Það virðist sem hin hægvirka hugmyndafræði Þórunnar þjóni henni vel þar sem afköstin tala sínu máli. 18.–21. september er Þórunn á leið til London að taka þátt í 100% Futures sem er hluti af hönnunar- og sölusýningunni 100% Design í London. Á 100% Futures eru samankomnir hæfileikaríkustu upprennandi hönnuðir heimsins sem sýna kraftmikla og tilraunkennda hönnun framtíðarinnar. 26.–28. september er Þórunn að taka þátt í Tallin Design Night í Eistlandi. Íslensk hönnun er í brennidepli á “hönnunarnótt” Tallin í ár og var Þórunn valin til þáttöku ásamt fleiri íslenskum hönnuðum af þarlendum sýningarstjórum. 1.–3. október má svo sjá hönnun Þórunnar á Helsinki Design Week í Finnlandi.

Þórunn er fædd árið 1982 og í hópi margra ungra íslenskra hönnuða sem eru að hasla sér völl hér heima og erlendis. Eftir útskrift Þórunnar úr vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands árið 2007 hlaut hún tilnefningu af hönnunarblaðinu Forum AID, sem einn af 10 áhugaverðustu útskriftarnemum í hönnun/arkitektúr á Norðurlöndunum.

Á námsárunum sýndi Þórunn verk ásamt samnemendum sínum á Hönnunardögum 2005 auk fleiri sýninga, en við útskrift úr Listaháskólanum var hún valin til þáttöku undir merkjum nýsköpunar á hönnunarsýningunni Magma Kvika sem sett var upp á Kjarvalsstöðum sumarið 2007. Auk þess hannaði Þórunn verðlaunagrip hvatningarverðlauna Öryrkjabandalags Íslands árið 2007.

Þórunn Árnadóttir situr fyrir svörum hjá Hönnunarmiðstöð:

Thorunn Arnadottir Clock
 thorunndesign blush
 Thorunn Arnadottir Raven
 
Drifkrafturinn?
Forvitni.

Ferlið?
Ferlið getur verið mjög mismunandi. Stundum eru hugmyndirnar nánast tilbúnar um leið og þær fæðast. Ferlið er samt yfirleitt frekar skrykkjótt og langt, ég á það til að liggja mikið yfir hlutunum og ég er ofsalega sjálfsgagnrýnin. En mér finnst ég vera að læra betur og betur að nýta gagnrýnina á jákvæðan hátt til þess að ýta mér skrefinu lengra en ég myndi annars gera, í stað þess að láta það stoppa mig. Ég eyði oft miklum tíma í rannsóknarvinnu þegar ég vinn að einhverju verkefni, mér finnst það einn skemmtilegasti hlutinn við hönnunarferlið þegar ég er að læra um eitthvað nýtt og verð spennt yfir því að vinna með það. 

Sýnin?
Þetta fjallar um að hafa gaman að þessu og ekki taka þessu of alvarlega.

Skiptir hönnun máli?
Já hún gerir það. Ég hef nú oft velt þessu fyrir mér... af hverju allt þetta vesen? Þurfum við eitthvað meira en bara stóla til að sitja á og klukku sem segir okkur tímann? Af hverju búum við ekki bara í ferkönntuðum einlitum húsum og keyrum eins bíla? Af hverju eru ekki allir bara í venjulegum buxum og bol? Það hljómar ekkert rökrétt að vera að eyða svona mikilli vinnu og peningum í að þróa eitthvað útlit. En umhverfið og hlutir í kringum okkur hafa bara meiri áhrif á okkur en við jafnvel kærum okkur um. Mannskepnan hefur verið að þessu veseni allt frá árdögum hennar, skreyta sig með einhverju, mála á veggi og tálga út styttur. Þetta er allt partur af sálar- og félagslífi mannskepnunnar. 

Hvað gerir eitthvað að góðri hönnun?
Eitthvað sem er gaman að horfa á og nota, og eldist vel. Góð hönnun hefur ákveðinn heiðarleika og þokka við sig, hún er ekki að reyna að vera eitthvað annað en hún er, t.d. plasthlutur sem líkir eftir málmáferð.  

Hvað er áhugaverðast núna?
Aukinn áhugi almennings og fyrirtækja á nýrri hönnun og ekki síður ungum hönnuðum.  

Hönnun allra tíma?
Moka Express kaffikannan frá Bialetti. Brilliant í útileguna. En ef við förum út í ópraktískari sálma:
 Bialetti Moka Express
 Horse Front Design
Hestalampinn frá Front Design. Svo skemmtilega kjánalegt að hafa heilan hest sem þykist vera lampi í stofunni hjá sér! Svo er hann líka fallegur. 

Hér og Þar (global/local):
Mér finnst frábært að hönnuðir eru í síauknum mæli farnir að leita sér að framleiðslu- og þjónustuaðilum í sinni heimabyggð. Framleiðslufyrirtæki hér heima mættu verða meðvitaðri um hversu stór partur ímynd og hönnun er af vörunni, þótt fyrirtæki í Kína framleiði sömu vöru margfalt ódýrara ætti það ekki að geta gera út af við minni fyrirtæki hérna heima. Verðlagið á vörum á markaðnum í dag er svo margslungið, það er ekki endilega alltaf ódýrasta varan sem gefur besta gróðann. Neytandinn getur t.d. valið um að kaupa sítrónupressu á 300 krónur eða “Philipp Starck sítrónupressu” á margfalt hærra verði. (Ég veit reyndar ekki hvar sú ágæta pressa er framleidd, en ég tók þetta bara svona sem dæmi um mismunandi verð á hlut sem gerir sama gagn.) "Think globally, act locally".

www.thorunndesign.com
www.100percentdesign.co.uk/page.cfm/action=Exhib/ExhibID=01228
www.100percentdesign.co.uk   
www.edl.ee/en/design_night
www.disainioo.ee/et/sisu/islandinitus.html
www.helsinkidesignweek.com/