Fréttir

11. mars 2010

Í barnastærðum | Sýning

Sýningin Í barnastærðum opnar í Hafnarborg nk. laugardag 13. mars 2010. Sýningin veitir innsýn í heillandi heim hönnunar fyrir börn. Sýningargestir á öllum aldri kynnast leikföngum og húsgögnum sem sérstaklega eru hönnuð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Bæði verður sýnd íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum sýningarinnar er að skoða verk íslenskra hönnuða. Sýningarstjóri er Tinna Gunnarsdóttir hönnuður. Sýningin stendur til 2. maí 2010. meira
11. mars 2010

Dagskrárkynning | HönnunarMars 2010

Kynning á glæsilegri dagskrá HönnunarMars 2010 fer fram í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur nk. fimmtudag 11. mars kl. 20. Allir velkomnir. .
11. mars 2010

Menningarverðlaun DV 2009

Bók um Manfreð Vilhjálmsson arkitekt var verðlaunuð í flokknum byggingarlist við afhendingu Menningarverðlauna DV 2009 og hönnunarhópurinn Vík Prjónsdóttir hlaut verðlaun í flokknum hönnun. Heiðursverðlaunin hlaut Jórunn Viðar, tónskáld og píanóleikari. meira
02. mars 2010

Ársfundur Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Á fundinum sem haldinn verður fimmtudaginn 11. mars kl. 8:30 - 10:45 á Hilton Reykjavík Nordica, verður sjónum beint að fjölbreytni í atvinnulífinu. .
02. mars 2010

Íslensk samtímahönnun í Dansk Design Center

Sýningin Íslensk samtímahönnun - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr opnaði í hinni virtu hönnunarmiðstöð Dana, Dansk Design Center föstudaginn 26. febrúar. Sýningin stendur til 18. apríl 2010. meira
01. mars 2010

HönnunarMars 2009 tilnefndur í flokki viðburða til íslensku auglýsingaverðlaunanna

Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, verða afhent nk. föstudag 5. mars á Hótel Nordica. Tilgangur keppninnar er að vekja athygli á vel gerðum auglýsingum og auglýsingaefni. .
01. mars 2010

Fundaröð | Toppstöðin

Fundaröð, þar sem ýmis málefni tengd nýsköpun og iðnaði verða krufin til mergjar, hefst í Toppstöðinni nk. föstudag 5. mars kl. 12. Áhersla verður lögð á umræður og þáttöku gesta. meira
28. febrúar 2010

Fyrirlestur | Lajos Major

Grafíski hönnuðurinn Lajos Major segir frá hugmyndum sínum og verkefnum í hádegisfyrirlestri Opna Listaháskólans föstudaginn 5. mars kl.12:05, Skipholti 1, stofu 113. .
24. febrúar 2010

Auglýst eftir styrkumsóknum í norrænu menningar- og listaáætlunina

Menningar- og listaáætlunin, sem er liður í norrænu samstarfi, veitir styrki til verkefna á sviði allra menningar- og listgreina. meira
21. febrúar 2010

YRKI arkitektar í Hafnarhúsi

Yrki arkitektar, Sólveig Berg og Ásdís Helga Ágústsdóttir munu sýna og segja frá helstu verkefnum sínum í fimmtudagssyrpu byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhúsi, nk. fimmtudagskvöld 25. febrúar kl 20:00. .
19. febrúar 2010

Hagnýtt hádegi | Fjármögnun - styrkir og fjárfestar

Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Innovit, fimmtudag 25. febrúar kl. 12-13.
Glærur frá fyrirlestrinum má nálgast hér. meira
19. febrúar 2010

Reykjavík Fashion Festival og Rauði Krossinn

Reykjavík Fashion Festival í samstarfi við Worn by Worship og Rauða kross Íslands kynna skemmtilegt verkefni í glugga Rauða kross verslunarinnar að Laugavegi 12. Hönnuðir sem taka þátt í RFF munu í aðdraganda hátíðarinnar hanna gluggaútstillingu verslunarinnar. .
18. febrúar 2010

Styrkúthlutun

Átta hönnuðir og arkitektar fengu úthlutað 7.880.000 kr. úr Hönnunarsjóði Auroru í gær 17. febrúar. meira
17. febrúar 2010

Ráðstefna | Iðnaðarráðuneytið auglýsir eftir þátttakendum

Iðnaðarráðuneytið auglýsir eftir fyrirtækjum til þátttöku í ráðstefnunni "Gulltaggen" sem haldin verður í Osló í Noregi 27.-29. apríl nk. Veittur verður ferðastyrkur til allt að 10 fyrirtækja. Áhugasamir sendi inn umsókn til iðnaðarráðuneytis fyrir föstudaginn 26. febrúar nk. .
17. febrúar 2010

Steinsteypudagurinn 2010

Steinsteypufélagið minnir á Steinsteypudaginn 2010, 19. febrúar nk. á Grand Hótel. Prófessor Kristian Hertz, Kai Westphal og fl. verða með erindi auk pallborðsumræðna um stöðu byggingariðnaðarins. Steinsteypuverðlaunin 2010 verða auk þess afhent. meira

Fréttayfirlit