HönnunarMars 2010


Hönnunarmiðstöð Íslands kynnir með ánægju hina árlegu hönnunarhátíð, HönnunarMars!

Dagana 18. – 21. mars 2010 stendur Hönnunarmiðstöðin öðru sinni fyrir HönnunarMars. Markmiðið er að halda áfram því góða starfi sem farið var af stað með, þar sem grasrótin í hönnunarsamfélagi landsins stendur fyrir stærsta hluta dagskrárinnar.

DesignMarch 2010

Hönnunarmiðstöð Íslands stóð fyrir HönnunarMars í fyrsta skipti í mars 2009. Verkefnið samanstóð af viðburðum, opnum húsum, kynningum, sýningum og fleiru þar sem íslensk hönnun var í fyrirrúmi. Dagskráin skartaði yfir 130 viðburðum um alla borg, sumum litlum – öðrum risastórum og fjölsóttum.

HönnunarMars er ætlað að vekja athygli á íslenskum hönnuðum og hönnun þeirra hjá almenningi, fjölmiðlum og stjórnvöldum. Íslenskir hönnuðir hafa verið að sækja mjög í sig veðrið undanfarin ár sem sést í þeirri miklu grósku sem er í íslenskri hönnun í dag.

Nú þegar hefur fjöldi erlendra blaðamanna boðað komu sína á HönnunarMars 2010. Erlendir fyrirlesarar, sem ættu að verða hönnunarsamfélaginu og öðrum innblástur, munu taka til máls í fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar auk þess sem Norrænir kaupendur og framleiðendur hönnunar taka þátt í kaupstefnu sem Hönnunarmiðstöð stendur fyrir í samstarfi við Norræna húsið.

Viðburðir í HönnunarMars 2010

• Sýningar á íslenskri hönnun og arkitektúr
• Opin hús
• Verðlaunaafhendingar
• Viðburðir, uppákomur og veislur

Úti um allan bæ

Á undanförnum árum hafa verslanir sprottið upp sem leggja áherslu á íslenska hönnun. Miðbær Reykjavíkur hefur sérstaklega blómstrað í þessum efnum. Sérstök áhersla er lögð á að verslanir af þessum toga taki þátt í dagskrá HönnunarMars með viðburðum af einhverju tagi. Eins hafa veitingastaðir og kaffihús verið virkjuð og sýningar settar upp víðs vegar um borgina. Ekki má gleyma verslunum í öðrum bæjarhlutum, sýningum og vinnustofum sem opna dyr sínar fyrir gestum.