HönnunarMars
HönnunarMars fer fram í fjórða skiptið, dagana 22. - 25. mars 2012. Frá upphafi hafa það verið íslenskir hönnuðir sem bera hitann og þungann af dagskrá hátíðarinnar sem spannar langa helgi og býður til ótal viðburða, innsetninga og sýninga.
HönnunarMars er fjögurra daga hönnunarhátíð í Reykjavík þar sem
dagskráin er barmafull af fjölbreyttum og spennandi viðburðum af ýmsu
tagi. Hönnuðir bjóða almenningi að kynna sér heim hönnunar með
áhugaverðum sýningum og fróðlegum fyrirlestrum sem endurspegla
fjölbreytta flóru íslenskrar hönnunar og arkitektúrs.
HönnunarMars var fyrst haldinn í mars 2009 þegar Íslendingar
stóðu á miklum tímamótum – fjármálakerfið hrunið og búið að boða
til Alþingiskosninga. Undirbúningur fyrsta HönnunarMarsins fór fram
undir taktfastri hrynjandi Búsáhaldabyltingarinnar við Austurvöll.
Tími breytinga. Strax þá var litið til nýsköpunar sem leiðarinnar út úr
því erfiða þjóðfélagsástandi sem skapast hafði. Gætu hönnuðir átt
hlutverki að gegna þar? Eitthvað þurfti að gera. Tæplega eins árs
gömul Hönnunarmiðstöð fór ekki varhluta af ástandinu og ljóst þótti
að stórt kynningarátak á íslenskri hönnun, samstilling strengja og
fjöldi lóða á vogarskálar var nauðsynlegur.
Hönnun á Íslandi er ekki ný af nálinni en gríðarlegur árangur og
vitundarvakning hefur átt sér stað á undanförnum árum. HönnunarMarsinn spannar vítt svið, allt frá helstu hönnuðum
þjóðarinnar sem sýna hvað í þeim býr, til nýútskrifaðra hönnuða
sem stíga sín fyrstu skref. Á HönnunarMars er hönnun kynnt
sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veiga-
miklu hlutverki á tímum mikilla breytinga.
Íslenskir hönnuðir eiga og reka Hönnunarmiðstöð. Hún hefur
mikilvægu hlutverki að gegna því að með tilkomu hennar hefur
skapast vettvangur fyrir hönnuði til að vinna að uppbyggingu
hönnunar og arkitektúrs á eigin forsendum.
Aðferðafræði hönnunar býr yfir einstökum tækifærum til sköpunar
og endursköpunar. HönnunarMarsinn örvar, hvetur og ýtir undir
sköpun því að þar mætast hönnuðir, fyrirtæki, framleiðendur og
kaupendur; nýir möguleikar og tækifæri verða til.
HönnunarMars er boðberi
vorsins og gróskunnar í íslenskri hönnun og lífleg bæjarhátíð. Á HönnunarMars býðst tækifæri að auðga andann og hljóta
innblástur af hinni taumlausu sköpunargleði sem ríkir innan
hönnunarsamfélagsins.
Við hlökkum til að sjá þig á HönnunarMars 2012.