Dagskrá | Valdir viðburðir

07. mars 2012

Rætur | Hafnarborg

Sýningin Rætur opnar í Hafnarborg laugardagnn 10. mars. Á sýningunni má sjá verk gullsmiða og samtímahönnuða sem unnið hafa skartgripi. Þema sýningarinnar vísar jafnt til náttúrunnar sem menningarlegra róta. meira
29. febrúar 2012

Stefnumót hönnuða og bænda | Spark Design Space

Stefnumót hönnuða og bænda, samstarfsverkefni LHI og Matís, teflir saman tveimur starfsstéttum með það að markmiði að skapa einstakar afurðir og auka verðmæti. Verkefnið sem stóð frá 2007 - 2011 er sýnt í heild sinni í fyrsta sinn. .
29. febrúar 2012

Samsýning Félags vöru- og iðnhönnuða

Sverð, ský, geisli, gjöf, kubbur, krukka og íssneið… er aðeins brot af þeirri fjölbreyttu hönnun sem sjá má á samsýningu Félags vöru- og iðnhönnuða á HönnunarMars. meira
29. febrúar 2012

Benedikt Gröndal: Íslenskir fuglar | Hátíðarútgáfa

Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir hönnuðu tvær gerðir bókarinnar Íslenskir fuglar eftir Benedikt Gröndal fyrir bókaútgáfuna Crymogeu. Hátíðarútgáfan kemur út á Hótel Natura á Benediktsmessu 21. mars kl: 20:00. .
29. febrúar 2012

Phobophobia

Teiknarar eru um allt heima hjá þér. Þeir hafa teiknað bækurnar í hillunum, bæklingana á stofuborðinu og aftan á morgunkornspakkann í eldhúsinu. Phobophobia er samsýning 34 íslenskra teiknara. meira
29. febrúar 2012

Stafasúpa með dassi af djassi | Reykjavík Letterpress

Í ár býður Reykjavík Letterpress upp á stafasúpu þar sem stefnt er saman lausaletri, blýklisjum, plastklisjum og tréstöfum svo úr verður ein allsherjar súpa. .
29. febrúar 2012

Rætur | Hafnarborg

Sýning á verkum gullsmiða og samtímahönnuða sem unnið hafa skartgripi. Þema sýningarinnar vísar jafnt til náttúrunnar sem menningarlegra róta. meira
29. febrúar 2012

Flétta

Textílfélag Íslands og Leirlistafélag Íslands standa að sýningunni Fléttu. Sýnendur flétta saman hugmyndir sínar og skapa nýjar og ferskar afurðir. .
29. febrúar 2012

Íslensk Húsgögn

Á. Guðmundsson, Axis, G. Á. Húsgögn, Sólóhúsgögn, Sýrusson og Zenus Íslenskir framleiðendur vilja koma á framfæri nýrri íslenskri framleiðslu þar sem ígrunduð hönnun og frábært handbragð haldast í hendur. meira
29. febrúar 2012

5 x Pönnukökupanna

Kraum hefur í samstarfi við fimm hönnuði staðið fyrir endurhönnun á skafti pönnukökupönnunnar. Pannan hefur verið smíðuð í hálfa öld hjá Málmsteypunni Hellu. .
29. febrúar 2012

Norðaustan 10

Nú blæs hann hressilega að norðaustan. Vöruþróunarverkefnið Norðaustan 10 er kynnt í Epal. Afurðir verkefnisins eru sýndar og saga verkefnisins sögð. meira
29. febrúar 2012

Ferðalagið | MUNDI

Ný vetrarlína Munda: The Journey eða Ferðalagið, verður sýnd með óvenjulegu sniði í Rauðhólum. Búast má við ævintýralegu umhverfi þar sem áhorfendur fá innsýn í Ferðalagið.
.
29. febrúar 2012

Wheel of nutrition Aperativo edition | HAF by Hafsteinn Júlíusson

Í tilefni þess að HAF by Hafsteinn Júlíusson er að hefja alþjóðlega dreifingu á næringardisknum er boðið uppá Wheel of Nutrition: Aperativo edition. meira