HönnunarMars 2011
HönnunarMars
er fjögurra daga hátíð í Reykjavík haldinn í mars á hverju ári fyrir hönnuði, fyrirtæki, áhugafólk um hönnun, almenning, erlenda gesti og ferðafólk. Á HönnunarMars gefst tækifæri til að skoða úrval af þeim fjölbreytilegu verkefnum sem íslenskir hönnuðir og arkitektar starfa að.
HönnunarMars setur lit sinn á Reykjavíkurborg og víða um landið. Hann boðar komu sumars, glaðlegur, bjartur og varpar ljósi á nýja möguleika.
Á þeim stutta tíma sem Hönnunarmiðstöð hefur verið starfrækt hefur orðið gríðarleg vakning í þjóðfélaginu gagnvart hönnun og þeim sköpunarkrafti og möguleikum sem íslensk hönnun býr yfir. Hvar sem ný verkefni, uppbygging eða hugmyndir eru á ferð getur góð hönnun verið lykillinn að árangri. Skilningur á mikilvægi hönnunar er orðinn almennur í kjölfar árangursríks starfs hönnuða á mörgum sviðum. Gjöfult samstarf milli hönnuða og íslenskra fyrirtækja fer mjög vaxandi enda góð hönnun eitt sterkasta vopnið í harðnandi samkeppni.
Sköpunarkraftur íslenskra hönnuða hefur vakið athygli erlendis og Hönnunarmiðstöð vinnur að því markmiði að íslensk hönnun verði sjálfsagður hluti af hönnun Norðurlandaþjóða. Margir hönnuðir vinna með erlendum fyrirtækjum og íslensk hönnunarfyrirtæki selja vörur sínar og þjónustu víða um heim. Íslensk hönnun er mikilvægur þáttur í þeirri nýju og jákvæðu ímynd sem við erum að byggja upp enda hefur umfjöllun um íslenska hönnun í erlendum fjölmiðlum aukist verulega.
Eitt stærsta hlutverk Hönnunarmiðstöðvar Íslands er að kynna íslenska hönnun á Íslandi og erlendis og HönnunarMars er stærsta kynningarverkefni okkar.
Dagana 18. – 21. mars 2010 stóð Hönnunarmiðstöðin öðru sinni fyrir HönnunarMars.