Hönnunarmiðstöð
Hönnunarmiðstöð Íslands
er ætlað að auka skilning á mikilvægi góðrar hönnunar og arkitektúrs fyrir þjóðfélagið. Hlutverk hennar er að efla hvers kyns hönnun
sem veigamikinn og virðisaukandi þátt í íslensku atvinnulífi og þannig auka samkeppnishæfni og verðmætasköpun í íslensku efnahagslífi.
Kynning
-
Hönnunarmiðstöð er kynningar- og upplýsingamiðstöð fyrir hönnun og arkitektúr á Íslandi.
-
Hönnunarmiðstöð leggur áherslu á að íslensk hönnun er mikilvægur hluti af menningu og ímynd lands og þjóðar.
-
Hönnunarmiðstöð vekur athygli á framúrskarandi íslenskri hönnun erlendis og leitast við að greiða fyrir markaðssetningu hennar.
-
Hönnunarmiðstöð auðveldar aðgengi að upplýsingum og heldur úti öflugum gagnabanka á vefnum fyrir hönnuði, arkitekta, fyrirtæki og áhugafólk um íslenska hönnun hérlendis og erlendis.
Samstarf
- Hönnunarmiðstöð er í góðu samstarfi við þá aðila sem vinna að framgangi hönnunar á Íslandi, myndar tengsl á milli greina og hvetur til samstarfs og umræðu.
Ráðgjöf
- Hönnunarmiðstöð veitir hönnuðum og fyrirtækjum ráðgjöf í tengslum við vöruþróun, framleiðslu, ímyndaruppbyggingu og útflutning.
-
Hönnunarmiðstöð styður og aðstoðar fyrirtæki, svo sem sprota- og frumkvöðlafyrirtæki, sem hafa takmarkað fjármagn og þekkingu til að koma sér áfram.
-
Hönnunarmiðstöð veitir fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf við hönnunartengd verkefni.
Nýsköpun
- Hönnunarmiðstöð leiðir saman fagmenntaða hönnuði og fyrirtæki í nýsköpunar- og vöruþróunarverkefnum.
-
Hönnunarmiðstöð stuðlar að aukinni rannsóknarvinnu og hönnunartengdum verkefnum í samvinnu við háskóla og fyrirtæki.
Viðburðir
- Hönnunarmiðstöð stendur fyrir viðburðum, sýningum og ráðstefnum sem skapa faglega umræðu og menntun á sviði hönnunar.
Vordagar íslenskrar hönnunar
Með stofnun Hönnunarmiðstöðvar Íslands hefur langþráður draumur
íslenskra hönnuða og arkitekta að lokum ræst en sameiginlegur
samstarfsvettvangur hönnuða hefur verið í burðarliðnum í fjölmörg ár.
Stofnun Hönnunarmiðstöðvar Íslands er hluti þeirrar grósku sem nú ríkir
í hönnunarmálum á Íslandi. Að mörgu leyti á hún rætur sínar að rekja til stofnunar Listaháskóla
Íslands árið 1998 og nokkru síðar arkitektúr- og hönnunardeildar en
þaðan hafa komið hönnuðir sem hafa fóstrast nær íslenskum veruleika en
áður þekktist. Á þann hátt hefur íslensk hönnun verið að taka á sig
skýrari mynd og skapa sér sérstöðu, því þótt hönnun eigi sér þó nokkra
sögu í íslensku samfélagi þá er íslensk hönnunarmenntun nýtilkomin. Ísland á því fjölmarga unga og efnilega íslenska hönnuði
sem hafa glætt hönnunarumhverfið nýju lífi sem einkennist nú af
forvitni, bjartsýni og dirfsku. Eitt af meginmarkmiðum
Hönnunarmiðstöðvar Íslands er einmitt að vinna að því að skapa
íslenskri hönnun ímynd og sérstöðu, hlúa að nýsköpun og vera hvati til
framfara í hönnunarmálum Íslendinga.
Hönnun er auðlind
Margt bendir til þess að íslenskt atvinnulíf standi á krossgötum nýrra leiða og tækifæra. Hönnun er auðlind sem mikilvægt er að nýta. Þær þjóðir sem eru að ná mestum árangri, leggja aðaláherslu á hönnun í vöruþróun og markaðsetningu og telja góða hönnun eitt sterkasta vopnið í harðnandi samkeppni. Breskar rannsóknir staðfesta að kostnaður við hönnun í samanburði við aðra framleiðsluþætti er tiltölulega lítill, en af einstökum verkþáttum þá er hönnunin sá þáttur sem skilar mestri arðsemi. Hérlendis er fjöldi vel menntaðra hönnuða og arkitekta, sem hafa stundað nám bæði hérlendis og erlendis. Það er mjög mikilvægt fyrir íslenskt þjóðfélag að nýta þekkingu, menntun og hæfileika þessa fólks okkur til framdráttar. Hönnun tengist allri atvinnustarfsemi, svo sem byggingariðnaði, framleiðsluiðnaði, sjávarútvegi, ferðamannaiðnaði, matvælaiðnaði, þjónustu og þekkingariðnaði. Hönnun nýtist ekki aðeins innlendri framleiðslu heldur er einnig hægt að flytja hana út í formi hugvits. Mikilvægi þess að auka hlutdeild hönnunar í íslensku atvinnulífi er því augljós.
Hönnunarmiðstöð Íslands
er í eigu Arkitektafélags Íslands, Félags húsgagna og innanhússarkitekta, Félags íslenskra landslagsarkitekta, Félags vöru- og iðnhönnuða, Leirlistafélags Íslands, Fatahönnunarfélags Íslands, Textílfélagsins, Félags íslenskra gullsmiða og Félags íslenskra teiknara.
Hönnunarmiðstöð Íslands
er rekin fyrir fjárframlög frá menntamálaráðuneyti og iðnaðarráðuneyti.