Lýsing:
Við erum hönnunar- og margmiðlunarstúdíó
sem samanstendur af ungum grafískum hönnuðum og listamönnum, en við
höfum helgað sköpunarkrafti líf okkar og starfsferil. Við erum mannlegt
og sýndarverulegt rými og við setjum grípandi samskipti, spennu og
nýjungagirni á oddinn. Við fáumst við hönnunar- og samskiptakerfi
fyrirtækja, rannsóknir á vörumerkjum og fyrirtækjaímynd, gerð og frágang
vöru- og kynningarbæklinga, ímyndarvinnu og markaðssetningu með öllum
þar að lútandi auglýsingaherferðum. Hvert skref
hönnunarvinnunnar sprettur af sérsniðnu sköpunarferli. Við skipuleggjum
sýningarrými þar sem frumleiki er í aðalhlutverki, göngum frá vönduðum
innréttingum og gefum sýningarbásum og vörusýningum einstakan og
persónulegan blæ, með tilliti til hinna ýtrustu smáatriða.Við sköpum
atburði og gerum þá eftirminnilega.$0
Við vinnum með gleðina að
leiðarljósi og fylgjum okkar innsæi. Við fylgjum ástríðum okkar og
breytum þeim í sköpunarkraft. Við virðum umhverfið og gott
vinnusiðferði, kjósum frumleg tjáskipti og höfnum fjöldaframleiðslu
klisjukenndra ímynda. Við erum sannfærð um að heiðarleg samskipti spari
peninga og sói ekki auðlindum heimsins!