Lýsing:
Gallerí Snærós á Stöðvarfirði. Íslenskir fuglar - Handunnir úr leir. Þessi fuglalína samanstendur af nokkrum vinsælum íslenskum fuglum, s.s. Lunda, Himbrima, Súlu, Krumma, Snjótittling og Lóu sem án efa er ástsælasti fugl Íslands, enda vorboði landans. Leirfuglarnir koma úr smiðju Rósu Valtingojer, einum af fjórum starfandi listamönnum hjá Gallerí Snærós. Rósa hefur í mörg ár unnið listhandverk úr leir. Hún bjó til fyrsta leirfuglinn aðeins 13 ára gömul, það var lóa og var sá fugl valinn inn á sýningu hjá Handverki og hönnun sem bar yfirskriftina "Íslenskir mynjagripir". Íslensku leirfuglarnir eru mjög vinsælir bæði á meðal erlendra ferðamanna jafnt og íslendinga. Vinsældirnar koma fyrst og fremst til vegna þess hve vandaðir fuglarnir eru og einlægri tjáningu listakonunnar sem skín úr hverjum fugli.