Hjá Landform er veitt alhliða ráðgjafaþjónusta á sviði hönnunar- og skipulagsmála. Landform leggur mikla áherslu á fagleg vinnubrögð og starfar þverfaglega að úrlausnum ýmissa verkefna með fjölmörgum arkitekta- og verkfræðistofum. Landform leggur áherslu á að vinna hvert einstakt verkefni í nánu samráði við verkkaupa sinn.