PROLOGUS er íslenskt fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í húsgagna- og innanhússhönnun sem og því að aðlaga eigin vöruhönnun að óskum hvers og eins viðskiptavinar. Jafnframt annast Prologus framleiðslu og sölu á sínum vörum. Í dag býður fyrirtækið uppá yfir 20 vörulínur, en um er að ræða vörur allt frá skrifstofu- og fundaherbergjahúsgögnum, sófum, stólum, skiltalínu, lömpum, skápum og hvers kyns innréttingum.
Heimasíðan er : www.prologus.is
PROLOGUS hefur verið starfrækt í rúm 10 ár. Meðal viðskiptavina félagsins eru Háskóli Íslands, Orkustofnun, Samband íslenskra sveitafélaga, Landsbankinn og Össur. Allar vörur PROLOGUS eru framleiddar af íslenskum iðnfyrirtækjum.