drekafluga

Netfang
info@drekafluga.is
Heimilisfang
Vesturbrún 16, 104 Reykjavík
Tengiliður
Þórdís Rós Harðardóttir
Sími
551 5651
GSM
821 5651
Vefsíða
Þjónustuflokkur ( Skilyrði!)
4
Fjöldi starfsmanna
1-5
Lýsing:

Áhrif rafmagnslýsingar og dagsbirtu á vinnuumhverfi eru ekki einungis til þess að uppfylla sjónrænar þarfir, heldur eru þau einnig líffræðilegs eðlis, þar sem birta hefur áhrif á hormónastarfsemi manna. Vægi hönnunar hefur aukist með rökstuddri vakningu um mikilvægi vellíðunar í starfsumhverfi þar sem ánægja starfsmanna og afköst eru metin til virðisauka. Í kjölfarið hefur þróun lýsingarhönnunar tekið stökkbreytingum með auknum kröfum um vísindalega rökstuddar hönnunarákvarðanir.

Dagsbirtan, gæði hennar og áhrif á vellíðan og vinnubrögð hefur rutt sér aftur til rúms og orðið veigameiri þáttur í þróun til sjálfbærni í hönnun bygginga. Rannsóknir sýna fram á að ánægja og einbeiting manna er allt að 40% meiri í starfsemi sem fer fram í góðum dagsbirtuskilyrðum. Með dagsbirtugreiningu fæst skilgreint hlutfall nýtanlegrar dagsbirtu sem samræmist birtukröfum vinnulýsingarstaðla, sem einnig nýtist til skilgreininga á stýringum í ljósabúnað til orkusparnaðar.

Lýsingarhönnun sem tekur mið af öllu ferlinu kemur til með að nýtast betur í heild, því rekstur, notkun og viðhald rafmagnslýsingar kemur til með að fylgja byggingunni og umhverfi hennar í ótilgreindan tíma.

Til Baka Senda síðuna Prenta Fjöldi heimsókna: 571