Lýsing:
Gagarín sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á stafrænu efni og lausnum fyrir gagnvirka miðla – margmiðlun.
Fyrirtækið
býr að langri reynslu á sviði margmiðlunar og hefur unnið ólík verkefni
fyrir fyrirtæki og opinbera aðila. Markmiðið er að lausnir Gagarín séu
ætíð aðgengilegar og auðveldar í notkun.