Uppsteyt merkir “uppreisn” eða “bylting”. Nafn merkisins vísar til uppreisnar gegn hefðbundnum hugmyndum í skartgripahönnun þar sem reglur hönnunar eru beygðar. Hver hlutur hefur sitt séreinkenni og yfirbragð en fjölbreytni vörulínunnar gerir sterkum og sjálfstæðum einstaklingum kleift að skapa sinn eigin stíl. Hönnuðir Uppsteyt leggja mikið upp úr hverju smáatriði og gæðin eru ávallt höfð í fyrirrúmi.
Þrátt fyrir ungan aldur vörumerkisins hefur Uppsteyt þegar náð miklum vinsældum og öðlast sterka markaðsstöðu á Íslandi. Reynsla og sérþekking hönnuða Uppsteyt leikur þar veigamikinn þátt, en saman búa hönnuðirnir að langri og farsælli sögu hvað varðar hönnun skartgripa.