Sýningar

11. mars 2010

Í barnastærðum | Sýning

Sýningin Í barnastærðum opnar í Hafnarborg nk. laugardag 13. mars 2010. Sýningin veitir innsýn í heillandi heim hönnunar fyrir börn. Sýningargestir á öllum aldri kynnast leikföngum og húsgögnum sem sérstaklega eru hönnuð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Bæði verður sýnd íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum sýningarinnar er að skoða verk íslenskra hönnuða. Sýningarstjóri er Tinna Gunnarsdóttir hönnuður. Sýningin stendur til 2. maí 2010. meira
08. mars 2010

Í barnastærðum | Sýning

Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar | 18.03–21.03 | 12:00–17:00 .
02. mars 2010

Íslensk samtímahönnun í Dansk Design Center

Sýningin Íslensk samtímahönnun - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr opnaði í hinni virtu hönnunarmiðstöð Dana, Dansk Design Center föstudaginn 26. febrúar. Sýningin stendur til 18. apríl 2010. meira
19. janúar 2010

Prjónað eftir eyranu | Fjölskyldusmiðja

Í fjölskyldusmiðju Kjarvalsstaða næstkomandi sunnudag 24. janúar kl. 14 mun Steinunn Sigurðardóttir hönnuður segja frá hugmyndum sínum og nálgun við prjónaskap í tengslum við sýningarverkefnið Steinssmiðja í norðursalnum. .
02. desember 2009

Opið hús | Korpúlfsstaðir

Laugardaginn 5. desember kl. 13 - 17 verður opið hús og samsýningin „Rauður“ opnuð á Korpúlfsstöðum. Sýningin verður aðeins opin þennan eina dag. Allir velkomnir. meira
02. desember 2009

Mótun | Sýning í Kirsuberjatrénu

Opnun á sýningu nemenda í mótunarnámi Myndlistaskólans í Reykjavík fer fram í Kirsuberjatrénu, Vesturgötu 4, föstudag 4. desember kl. 17. Sýningin er opin alla helgina og eru allir velkomnir. .
01. desember 2009

Brunnur | Sýning

Sýningin Brunnur opnaði 28. nóvember sl. í Gallerí Sævars Karls í Bankastræti og stendur til 31. desember. Allir velkomnir. meira
19. nóvember 2009

STEiNUNN

Yfirlitssýning á fatahönnun Steinunnar Sigurðardóttur var opnuð á Kjarvalsstöðum laugardaginn 21. nóvember. Sýningin stendur til 31. janúar 2010. .
17. nóvember 2009

Sýning | Allt mögulegt

Bjargey Ingólfsdóttir hönnuður opnar sýninguna Allt mögulegt föstudaginn 13. nóvember nk. í IKEA. Að undanförnu hefur Bjargey unnið nýja hluti úr IKEA−vörum þar sem hugmyndaauðgi ræður för. Búsáhöld hafa öðlast nýtt líf og ljósum prýdd sauðagæra skapar hlýlega jólastemningu. meira
12. nóvember 2009

Málþing | Högna Sigurðardóttir arkitekt

Nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á verkum Högnu Sigurðardóttur arkitekts með áherslu á íslensk verk hennar. Í tengslum við sýninguna verður haldið málþing í fyrirlestrasal Kjarvalsstaða nk. laugardag 14. nóvember klukkan 14-17. .
03. nóvember 2009

Sýning | Högna Sigurðardóttir arkitekt

Einkasýning á verkum Högnu Sigurðardóttur arkitekts, verður opnuð laugardaginn 7. nóvember kl. 16:00 á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni er lögð áhersla á íslensk verk, byggð sem óbyggð. meira
02. nóvember 2009

Sýning | Snædrottningin

Özden Dóra býður til opnunar á SNÆDROTTNINGUNNI, sýningu á handgerðum höttum, í versluninni STEiNUNN, Bankastræti 9, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17-20. .
02. nóvember 2009

Sýning | Áferðir 1

Brynhildur Þórðardóttir fata- og textílhönnuður býður til opnunar á sýningunni Áferðir 1, föstudaginn 6. nóvember kl. 17 í Café Loka, Lokastíg 28 í Reykjavík. meira
29. október 2009

Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur

Árleg sýning HANDVERKS OG HÖNNUNAR í Ráðhúsi Reykjavíkur opnar nk. föstudag 30. október, þar sem listamenn kynna fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun. Auk þess verða Skúlaverðlaunin 2009 afhent. Sýningin stendur til mánudagsins 2. nóvember. .
29. október 2009

Fabelhaft | Tískuviðburður í Fríkirkjunni

Hönnuðirnir Thelma, Skaparinn og Go with Jan bjóða til tískuviðburðar í Fríkirkjunni laugardaginn 31. október kl. 17:00, undir merkjum verslunar sinnar Fabelhaft. Monika Abendroth og dj musician sjá um tónlistina. meira
28. október 2009

Sýningin Íslensk hönnun 2009 í Ketilhúsinu

Sýningin Íslensk hönnun 2009 - Húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr stendur yfir frá 24. október - 7. nóvember í Ketilhúsinu á Akureyri. Sýningarstjóri er Elísabet V. Ingvarsdóttir. .
20. október 2009

Hringur á fingur | Sýning

Félag íslenskra gullsmiða fagnar 85 ára afmæli í ár. Félagið er meðal elstu starfandi fagfélaga á landinu. Af þessu tilefni opnar samsýning félagsmanna í Fógetahúsinu, Aðalstræti 10, laugardaginn 24. október kl.16:00. meira
20. október 2009

Fuzzy kollurinn | Sýning á Skörinni

Fuzzy Kollar Sigurðar Más Helgasonar, húsgagnabólstrara eru nú til sýnis á skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN í Aðalstræti 10. Sýningin verður opnuð laugardaginn 24. október  og stendur til 22. nóvember 2009. .
09. október 2009

Leiðsögn í Hönnunarsafni Íslands

Íslensk húsgagnaframleiðsla stóð með miklum blóma á tímabilinu 1950 - 1970 og víða leynast enn húsgögn frá þeim tíma á íslenskum heimilum og stofnunum. Í leiðsögn um geymslusýningu Hönnunarsafnsins mun Arndís S. Árnadóttir hönnunarsagnfræðingur skyggnast um og greina frá helstu áföngum í sögu íslenskrar húsgagnasmíði og hönnunar á síðustu öld og tengja við gripi safnsins. Leiðsögn sunnudaginn 11. október kl. 15:00 í Hönnunarsafni Íslands, Lyngási 7-9, Garðabæ. meira
03. september 2009

Sýning | Strengur

Philippe Ricart sýnir spjaldofin verk á Skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN, Aðalstræti 10, Reykjavík. Sýningin opnar föstudaginn 4. september kl. 16.00 og stendur til 22. september 2009. .
09. ágúst 2009

Íslensk hönnun 2009 | Húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr

Listasafn Reykjavíkur | Kjarvalsstaðir | Sýningin stendur frá 15. maí - 9. ágúst | Sýningarstjóri er Elísabet V. Ingvarsdóttir. meira
07. júlí 2009

Sýningarstjóraspjall | Íslensk hönnun 2009

Elísabet V. Ingvarsdóttir sýningarstjóri verður með sýningarstjóraspjall á Kjarvalsstöðum nk. sunnudag 12. júlí kl. 15. .
07. júlí 2009

Erindi | Andrea Maack

Fimmtudaginn 16. júlí kl. 17:30 í Gallerí Ágúst, Baldursgötu 12, heldur Andrea Maack erindi um nýjustu sýningu sína  S H A R P by ANDREA MAACK og segir frá verkefnum sínum og samvinnu við  tískuheiminn, hönnuði og ilmvatnsgerðarmenn. meira
06. júlí 2009

101 TOKYO | Snerting við Japan í Norræna húsinu

Fyrirlestur fimmtudaginn 9. júlí kl. 20 | JAPÖNSK ÁHRIF Á ALVAR AALTO OG NORRÆNA BYGGINGARLIST | Leif Høgfeldt Hansen arkitekt. .
30. júní 2009

Sumarsýning Hönnunarsafns Íslands

Úrval íslenskrar hönnunar frá síðustu árum er til sýnis í safnhúsi Hönnunarsafns Íslands að Lyngási í Garðabæ. Safnhús Hönnunarsafnsins er opið fimmtudaga til sunnudaga í sumar kl. 13-17 og er aðgangur ókeypis. meira
30. júní 2009

Sýning | Linda Björg Árnadóttir kynnir Scintilla

Linda Björg Árnadóttir hönnuður kynnir Scintilla í Gallery Turpentine á Skólavörðustíg 14, fimmtudaginn 2. júlí kl. 17. .
23. júní 2009

101 TOKYO | Snerting við Japan í Norræna húsinu

25.júní kl 20:00 FYRIRLESTUR | BYGGT MEÐ NÁTTÚRUNNI – LJÓÐRÆN VERKEFNI  meira
12. júní 2009

101 TOKYO | Snerting við Japan í Norræna húsinu

Dagana 13. júní til 13. júlí 2009 verður boðið upp á fjölbreytta japanska menningardagskrá í Norræna húsinu sem samanstendur af bæði litríkri sýningu og viðburðum af ýmsu tagi, þar sem hönnun, byggingarlist o.fl. fær að njóta sín. .
12. júní 2009

Af gróðri jarðar | Sýning

Nú stendur yfir sýning Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar myndlistarmanns og Tinnu Gunnarsdóttur hönnuðar í Gallery Turpentine á Skólavörðustíg 14. Sýningin stendur til 28 júní. meira
26. maí 2009

Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi

Sýningin opnar mánudaginn 1. júní kl. 14 og stendur til 31. ágúst. Sýnendur eru Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Kristveig Halldórsdóttir og Rósa Helgadóttir. .
15. maí 2009

MEATPACKING DISTRICT DESIGN 09 | Íslenskir hönnuðir sýna í New York

Hönnuðirnir Kristín Birna Bjarnadóttir, Dagur Óskarsson og Jón Björnsson taka þátt í hönnunarvikunni í New York 15.-17. maí 2009. meira
15. maí 2009

Lífið er ekki bara leikur - það er líka dans á rósum | Sýning

Laugardaginn 16. maí n.k. opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sýningin Lífið er ekki bara leikur - það er líka dans á rósum sem er samstarfsverkefni Ljósmyndasafns Reykjavíkur og hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands. .
06. maí 2009

MÓTUN | Vorsýning Mótunarnemenda í Myndlistarskólanum í Reykjavík

Verkin á sýningunni eru vörur sem voru hannaðar í samstarfi við íslensk fyrirtæki með fjöldaframleiðslu í huga. meira
28. apríl 2009

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands stendur yfir á Kjarvalsstöðum, 23. apríl - 3. maí. Þar eru til sýnis um 70 verk útskriftarnema úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild.  .
22. apríl 2009

MANNORÐ ÞJÓÐAR | Sýning í Hugmyndahúsi Háskólanna

Miðvikudaginn 22. apríl verður opnuð sýning um búsáhaldabyltinguna svonefndu, í Hugmyndahúsi Háskólanna, Grandavegi 2. meira
08. apríl 2009

Lækjartorg - Reykjavíkurhöfn | Tillögur að skipulagi og uppbyggingu | Sýning

Úrslit í alþjóðlegri samkeppni um nýjar höfuðstöðvar gamla Landsbankans eru til sýnis á Háskólatorgi. .
02. apríl 2009

30 vöruhönnuðir glæða tóm rými nýju lífi | Framhald

Tómu rýmin á Laugaveginum verða opin 4. & 5. apríl n.k. vegna fjölda áskorana, auk þess sem efnt verður til vinnusmiðju. meira
01. apríl 2009

Einu sinni er | Sýning í Safnasafni

Sýning HANDVERKS OG HÖNNUNAR opnar laugardaginn 4. apríl kl. 15:00 í Safnasafninu á Svalbarðsströnd. Sýningin stendur frá 4. til 13. apríl 2009. .
25. mars 2009

Tískusýningar í HönnunarMars


Fimmtudagur 26. mars
Norræna húsið kl.16:00 | Laugavegur kl. 18:00 | Listasafn Reykjavíkur kl. 20:00 | Borgartún kl. 21:00  meira
25. mars 2009

Dagskrá Fatahönnunarfélagsins í HönnunarMars

Fatahönnunarfélag Íslands hefur undirbúið spennandi dagskrá í Norræna húsinu dagana 26. – 29.mars í HönnunarMars. .
25. mars 2009

Götugallerí Hönnunarmiðstöðvar

Götugallerí Hönnunarmiðstöðvar Íslands var afhjúpað að Austurstræti 16 í gær að viðstöddu fjölmenni. Um er að ræða innsetningu grafíska hönnuðarins Sigga Eggertssonar. meira
15. mars 2009

Norræni tískutvíæringurinn í Norræna húsinu

Tíska og skartgripahönnun frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi er í forgrunni á NORRÆNA TÍSKUTVÍÆRINGNUM sem haldinn er í fyrsta sinn dagana 19. mars - 5. apríl 2009. .
14. mars 2009

Duftkerjasýning Leirlistafélagsins

Leirlistafélag Íslands opnar sýningu á Duftkerjum, laugardaginn 21. mars kl. 14 í Listasal Mosfellsbæjar. meira
13. mars 2009

„Frá Viborg til www" | Sýning í Handverki og Hönnun

Sýning á lokaverkefni Katrínar Jóhannesdóttur úr vélprjóni frá Textilseminariet Viborg opnar föstudaginn 13. mars kl. 16. .
11. febrúar 2009

Höfuðföt á sýningu á Safnanótt

Verið velkomin á opnun sýningar á völdum höfuðfötum frá Thelmu Design í versluninni STEiNUNN í Bankastræti 9 á Safnanótt. meira
06. febrúar 2009

35 ára afmælissýning Textílfélagsins í Gerðarsafni

Þverskurður er heitið á sýningu Textílfélagsins sem opnar í Gerðarsafni laugardaginn 7.  febrúar. Þessi þrískipta og fjölbreytta sýning spannar ríflega 60 ár í textílsögunni. .
03. desember 2008

Sýning í Iðukjallaranum

Samsýning nemenda úr Mótunarnámi Myndlistaskólans í Reykjavík í kjallara Iðu við Lækjargötu 5. - 14. desember. meira
27. nóvember 2008

Jólakjólar - sýning í Listasafni ASÍ

Laugardaginn 29. nóvember kl. 15:00 verður opnuð í Listasafni ASÍ sýningin Jólakjólar. .
12. nóvember 2008

Jólaskeiðin - Jólasýning Hönnunarsafns Íslands

Jólaskeiðin - íslensk hönnun og smíði 1946-2008, er yfirskrift sýningar Hönnunarsafns Íslands sem opnuð verður nk. laugardag 15. nóvember 2008 kl. 14. meira
22. júní 2007

Magma - bókin

Samhliða sýningunni Magma / Kvika sem haldin var á Kjarvalsstöðum árið 2007 var gefin út hönnunarbók um íslenska samtímahönnun. Bókin er á íslensku og ensku og þjónar mikilvægu hlutverki við kynningu á íslenskri hönnun hér heima og erlendis. .
22. júní 2007

MAGMA / KVIKA Sýningastjóraspjall

Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir sýningastjóri Magma / kvika verður með leiðsögn og sýningastjóraspjall, sunnudaginn 24. júní, klukkan 15.00. meira
20. júní 2007

Icelandic design in New York

"When I strolled into an exhibition dubbed "Iceland Cometh - Icelandic Design Collective," I expected lots of inoffensively funky light wood furniture - like Ikea, only Björk-ier. The reality could not have been more surprising, or more breathtaking." New York Cool .
27. apríl 2007

MAGMA / KVIKA – Íslensk samtímahönnun

Magma / Kvika er ein viðamesta sýning sem sett hefur verið upp á íslenskri samtímahönnun. meira