Hönnun er auðlind
sem mikilvægt er að nýta nú þegar íslenskt atvinnulíf stendur á krossgötum nýrra leiða og tækifæra. Hönnun snertir öll svið samfélagsins hvort sem um er að ræða þróun samfélagsins sjálfs, þróun efnhagslífsins, þróun hugmynda, verkefna, vöru, þjónustu, ferla eða viðburða. Hönnun á erindi inn í fyrirtæki, stofnanir, heimili og ekki síður í stjórn- sýslu og stjórnmál. Með því að virkja þekkingu og aðferðafræði hönnuða getum við haft afar jákvæð áhrif á það hvernig þjóðfélagið þróast og hver lífsgæði okkar verða í framtíðinni.
Skapandi greinar er sá vettvangur sem flestar þjóðir horfa á sem helsta vaxtrarbrodd næsta áratugar. Þessar þjóðir leggja megináherslu á hönnun og telja góða hönnun eitt sterkasta vopnið í harðnandi samkeppni. Rannsóknir staðfesta að hönnun er sá þáttur sem skilar mestri arðsemi enda er kostnaður við hönnun hlutfallslega lítill í saman- burði við aðra framleiðsluþætti.
Á Íslandi starfa um 1500 vel menntaðir hönnuðir og arkitektar, sem hafa stundað nám bæði hér og erlendis. Það er mjög mikilvægt fyrir íslenskt þjóðfélag að nýta þekkingu, menntun og hæfileika þessa fólks okkur til framdráttar. Hönnun tengist allri atvinnustarfsemi, svo sem byggingariðnaði, framleiðsluiðnaði, sjávarútvegi, ferðamannaiðnaði, matvælaiðnaði, þjónustu og þekkingariðnaði. Hönnun nýtist ekki aðeins innlendri framleiðslu heldur er einnig hægt að flytja hana út í formi vöru og hugvits.
Hönnunarmiðstöð Íslands
er kynningar- og upplýsingamiðstöð fyrir íslenska hönnun á Íslandi og erlendis. Meginhlutverk Hönnunarmiðstöðvar er að efla skilning þjóðarinnar á mikilvægi hönnunar fyrir samfélagið og íslenskt efnahagslíf og benda á þá miklu verðmætasköpun sem getur falist í íslenskri hönnun fyrir þjóðfélagið allt. Hönnunarmiðstöð stuðlar að framgangi íslenskra hönnuða erlendis, enda eru þar stór tækifæri fyrir íslenska hönnun og framleiðsluvörur.
Verkefni Hönnunarmiðstöðvar
Kynning
- Kynningarmiðstöð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi
- Vekur athygli á framúrskarandi íslenskri hönnun erlendis
- Rekur öflugan vef á íslensku og ensku um íslenska hönnun og arkitektúr
- Stuðlar að faglegri umfjöllun um hönnun og arkitektúr
- Greiðir fyrir markaðssetningu og útflutningi íslenskrar hönnunar
Ráðgjöf
- Mótar hönnunarstefnu með stjórnvöldum
- Veitir hönnuðum ráðgjöf um vöruþróun, framleiðslu, ímyndaruppbyggingu og útflutning
- Styður sprota- og frumkvöðlafyrirtæki, með takmarkað fjármagn og þekkingu til að koma sér áfram
- Veitir fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf um hönnunartengd verkefni.
Nýsköpun
- Leiðir hönnuði og fyrirtæki saman í nýsköpunar- og vöruþróunarverkefnum
- Vinnur að því að auka fjármagn til þróunar hönnunarfyrirtækja
Samstarf
- Myndar tengsl á milli greina og hvetur til samstarfs og umræðu
- Stuðlar að auknum mælingum og rannsóknarvinnu varðandi umfang og vöxt hönnunargeirans
- Ýtir undir fræðslu í markaðsmálum, verkefnastjórnun og framleiðslu
Viðburðir
- Stendur fyrir fyrirlestrum, sýningum, ráðstefnum og HönnunarMars
Hönnunarmiðstöð Íslands
er í eigu Arkitektafélags Íslands, Félags húsgagna og
innanhússarkitekta, Félags íslenskra landslagsarkitekta, Félags
vöru- og iðnhönnuða, Leirlistafélags Íslands, Fatahönnunarfélags
Íslands, Textílfélagsins, Félags íslenskra gullsmiða og Félags
íslenskra teiknara.
Hönnunarmiðstöð Íslands
er rekin fyrir fjárframlög frá menntamálaráðuneyti og iðnaðarráðuneyti.
Sækja kynningarefni sem PDF