Þann 25. febrúar sl. var haldinn kynningarfundur þar sem iðnaðarráðuneyti og mennta- og menningarmálaráðuneyti í félagi við Hönnunarmiðstöð Íslands ýttu úr vör verkefninu mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland.

Á fundinum kynntu iðnaðarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra tilurð verkefnisins ásamt drögum að framkvæmdaáætlun. Hönnunarmiðstöð kynnti rannsóknarvinnu sem unnin var í sumar og rektor Listaháskóla Íslands var með erindi.

Iðnaðarráðherra hefur skipað stýrihóp sem stýrir verkefninu mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland. Stýrihópurinn samanstendur af eftirtöldum aðilum: Sigurði Þorsteinssyni, fulltrúa tilnefndum af iðnaðarráðherra sem jafnframt er formaður, Sóley Stefánsdóttur, fulltrúa tilnefndum af mennta- og menningarmálaráðherra og Höllu Helgadóttur, fulltrúa tilnefndum af stjórn Hönnunarmiðstöðvar Íslands.



Frá Hugmyndafundi í Tjarnarbíó 15. júní 2011 | Höfundar myndefnis: www.glamour.is

Iceland Design Policy from Iceland Design Centre on Vimeo.


NÝR FARVEGUR | RÁÐSTEFNA 26. ÁGÚST 2011 Í HÖRPU

NÝR FARVEGUR | RÁÐSTEFNA UM HÖNNUNARSTEFNU ÍSLANDS: DAGSKRÁ | FYRIRLESARAR

HUGMYNDAFUNDUR VEGNA HÖNNUNARSTEFNU 15. JÚNÍ 2011

KYNNING HÖNNUNARMIÐSTÖÐVAR Í TJARNARBÍÓI 25. FEBRÚAR 2011

FRAMKVÆMDAÁÆTLUN IÐNAÐARRÁÐUNEYTIS


RANNSÓKNARVINNA FYRIR GERÐ HÖNNUNARSTEFNU ÍSLANDS


Umfjöllun í fjölmiðlum, um Mótun hönnunarstefnu Íslands og um ráðstefnuna Nýr farvegur | Ráðstefna um hönnunarstefnu Íslands


Viðtal við John Thackara í Viðskiptablaðinu, 1. september 2011 og netútgáfa 5. september: http://www.vb.is/frett/65788/

Viðtal við John Thackara í Víðsjá, Rás 1, fimmtudaginn 25. ágúst 2011: http://dagskra.ruv.is/ras1/4555712/2011/08/25/0

Umfjöllun um ráðstefnuna og viðtal við Jan R. Stavik í kvöldfréttum RÚV, laugardaginn 27. ágúst 2011: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4547448/2011/08/27/9

Umfjöllun um verkefnið Mótun hönnunarstefnu og viðtal við Sigurð Þorsteinsson, formann stýrihóps í Kastljósi, 25. ágúst 2011: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4579978/2011/08/25/1

Viðtal við Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar, og meðlim stýrihóps um Mótun hönnunarstefnu í Samfélaginu í nærmynd, Rás 1, 25. ágúst, 2011: http://dagskra.ruv.is/ras1/4556114/2011/08/25/

Viðtal við Sigríði Sigurjónsdóttur, vöruhönnuð í Fréttablaðinu fimmtudaginn 25. júní 2011, bls 34: http://www.visir.is/ExternalData/pdf/fbl/110825.pdf

Viðtal við Auði Ösp Guðmundsdóttur í Helgarblaði Fréttatímans 25.-26. ágúst 2011 og á vef Fréttatímans: http://www.frettatiminn.is/daegurmal/miklu_meira_en_bragdgod_magafylli/