Meðal verkefna félagsins er að skerpa á gæðavitund almennings, efla nám og endurmenntun í greininni, eiga samskipti við erlenda starfsfélaga og standa fyrir kynningum, sýningum og vinnuskiptum. Félagið er aðili að Samtökum iðnaðarins og Hönnunarmiðstöð Íslands.
Óhætt er að fullyrða að íslenskir gullsmiðir standi erlendum starfsbræðrum ekkert að baki í fagmennsku og listsköpun. Handsmíðaðir íslenskir skartgripir eru bæði fallegir, vel unnir og hverjum manni sómi að bera slíkan grip.
Stjórn 2024/2025
Arna Arnardóttir
fagráð, Félag íslenskra gullsmiðaarnastjarna@hotmail.com