Drög að breytingum á leiðbeiningum með byggingarreglugerð
Húsnæðis-og mannvirkjastofnun hefur sent frá sér drög að breyttum leiðbeiningum fyrir gr. 9.5.4. í byggingarreglugerð um eina flóttaleið frá notkunareiningu og óskar eftir athugasemdum.
Grein 9.5.4. var breytt í síðustu útgáfu byggingarreglugerðar og kemur þessi breyting á leiðbeiningunni í framhaldi af því. Er hagsmunaaðilum hér með gefinn kostur á að kynna sér efni leiðbeininganna og senda Húsnæðis-og mannvirkjastofnun athugasemdir, leiðréttingar og viðbætur. Endilega kynnið ykkur drögin vel og ef þið hafið athugasemdir að koma þeim áleiðis.