Endurmenntun fyrir arkitekta hjá EHÍ
Arkitektafélag Íslands á í góðu samstarfi við Endurmennun Háskóla Íslands og hefur menntamálanefnd AÍ haft aðkomu að mörgum námskeiðum sem nú eru í boði fyrir félagsmenn AÍ. Eins hefur fræðslukönnun sem EHÍ hefur sent til félagsmanna AÍ skilað þónokkrum árangri.
Meðal námskeiða sem í boði eru nú á haustönn er námskeið í deiliskipulagi, húsakönnun, verkefnastjórnun, hljóð og lýsingarhönnun, hvernig á að gera og standa að hönnunar-og verktakasamningum.
Við minnum félagsmenn stéttarfélaga á að langflest stéttarfélög veita félagsmönnum sínum styrki til endurmenntunar. Kynntu þér vel þinn rétt.