Löggildingarnámskeið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í mars-apríl 2021
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í mars – apríl 2021 og verður námskeiðið í fjarkennslu.
Opnað verður fyrir fyrirlestra mánudaginn 15. mars og verða þeir opnir til 27. mars. Námskeiðinu lýkur með prófi laugardaginn 27. mars, (allar dagsetningar eru settar fram með fyrirvara umbreytingar).
Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs.
Fylgigögn eru:
1) afrit af prófskírteini umsækjanda
2) vottorð frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um réttindi til starfsheitis
3) vottorð/um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga um mannvirki
Umsókn fer fram á vef IÐUNNAR- fræðsluseturs https://www.idan.is/ ásamt fylgigögnum eigi síðar en þriðjudaginn 2. mars 2021.