Vel heppnað málþing Hönnunarmiðstöðvar

18. nóvember 2019

Það er óhætt að segja að húsfyllir hafi verið á málþingi Hönnunarmiðstöðvar,Hannað í hring - hönnun sem tæki til að þróa nýjar leiðir og sjálfbærar lausnirí Iðnó sem haldið var í tengslum við Hönnunarverðlaun Íslands 2019.

Fjalla var um sjálfbærar byggingar, matarhönnun, hönnun velferðarkerfis, hönnun sjálfbærra efna og hvernig hægt er að skilja og einfalda flókin kerfi með hönnun. Þeir sem fóru með erindi voru Halldór Eiríksson arkitekt/Tark, Valdís Steinarsdóttir, hönnuður, Edda Jónsdóttir frá Stafrænni Reykjavík, Nils Wiberg frá Gagarín og Kristín María Sigþórsdóttir, vöruhönnuður.

Að erindum loknum voru svo snarpar pallborðsumræður um hlutverk hönnunar með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun að leiðarljósi sem stjórnandi málþingsins Fanney Birna Jónsdóttir stýrði. Í panel sátu Sigurður Hannesson frá Samtökum Iðnaðarins, Anna María Bogadóttir arkitekt og lektor í arkitektúr í Listaháskóla Íslands, Andri Snær Magnason rithöfundur, Ásbjörg Kristinsdóttir frá Landsvirkjun og Magnús Þór Torfason, lektor í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum hjá Háskóla Íslands.

Hér má sjá myndir sem ljósmyndarinn Aldís Pálsdóttir tók og má sjá fleiri á Facebook síðu Hönnunarmiðstöðvar hér.

Dagsetning
18. nóvember 2019
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir
Ljósmyndari
Aldís Pálsdóttir

Tögg

  • Hönnunarverðlaun
  • Greinar
  • Málþing