Félagið
Um Félagið
Fatahönnunarfélag Íslands (FÍ) er fagfélag fatahönnuða á Íslandi og er einn af níu fagfélögum sem eru eigendur Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Markmið félagsins er að efla samheldni meðal þeirra sem starfa við fatahönnun á Íslandi og standa vörð um réttindi félagsmanna. Félagið leggur áherslu á að stuðla að öllu því er til framfara horfir í greininni og að efla hugvit innan íslenskrar fatahönnunar. Félagið leggur sig fram við að upplýsa almenning um fatahönnuði og þeirra starfsvettvang.
Fræðsla
Félagið stendur fyrir hinum ýmsu sýningum og atburðum með það að leiðarljósi að kynna íslenska fatahönnun, fræða almenning um fatahönnuði og þeirra starfsvettvang ásamt því að hvetja til faglegrar umræðu.
Uppskeruhátið
Uppskeruhátíðin er haldin í árslok og er markmið hennar að efla samheldni félagsmanna og skapa vettvang fyrir fræðslu og faglega umræðu.
Indriðaverðlaunin
Annað hvert ár veitir Fatahönnunarfélagið Indriðaverðlaunin, sem nefnd eru eftir Indriða Guðmundssyni klæðskera. Með verðlaununum vill Fatahönnunarfélag Íslands veita hönnuðum viðurkenningu fyrir starf sitt og framlag til íslenskrar fatahönnunar og beina ljósi að því besta sem er að gerast í íslenskri fatahönnun hverju sinni. Verðlaunin eiga að auka vitund og virðingu fyrir íslenskri fatahönnun. Hér má finna frekari upplýsingar um Indriðaverðlaunin
Hönnunarmars
Félagið hefur tekið þátt í HönnunarMars frá upphafi með samsýningum þar sem úrval hönnunar félagsmanna er sýnd undir listrænni stjórn sýningarstjóra.
Félagar Fatahönnunarfélagsins fá afslátt af þátttökugjöldum Hönnunarmars.
Nordic Fashion Association
Fatahönnunarfélag Íslands er eitt af stofnfélögum Nordic Fashion Association (NFA) sem var stofnað 2008. Félagið beitir sér fyrir að þróa og innleiða sjálfbærni í Norrænni fatahönnun. NFA hefur einnig leitt af sér ýmislegt norrænt samstarf um endurnýtingu hráefni, fræðslu um sjálfbærni og önnur verkefni.
Eurpean Fashion Alliance
European Fashion Alliance (EFA) var stofnað á vormánuðum 2022 og er Evrópubandalag samtaka og ráða í fatahönnun sem hafa það að markmiði að sameina og efla Evrópska tísku.
Bandalagið er stofnað til að styrkja og stækka net samtaka og stofnana til að þróa sameiginlegan skilning meðlima á hagnýtum markmiðum um hvernig tískuiðnaðurinn og hagaðilar hans, svosem stuðningsstofnanir og einnig óbeint fyrirtæki og annað fagfólk, geta sameiginlega hjálpað til við að umbreyta iðnaðnum til að stuðla að verndun jarðarinnar og íbúa hennar. Með stofnun bandalagsins stefna meðlimir EFA, sem eru fulltrúar stórs og sértæks hluta tískuiðnaðarins, sameiginlega að því að efla evrópska tísku með því að vinna saman á sviðum sjálfbærni, nýsköpunar, inngildingar og kynningar. Þetta er gert til þess að hraða innleiðingu þessa markmiða í raunhæfar aðgerðir og stefnumál stjórnvalda.
Með þessu neti evrópskra tískuráða, kynningarstofnana, hraðla og klasa miðar nýja bandalagið ekki aðeins að því að deila, fræða og rannsaka markaðinn, þekkingu, tengiliði og góða viðskiptahætti heldur einnig vinna að með fjölbreyttum hópi efnahagslegra, pólitíska og félagslegra hagaðila á evrópskum vettvangi.
Myndstef
Félagsmenn í FHI verða sjálfkrafa félagsmenn í Myndstefi, Myndhöfundasjóði Íslands, en Myndstef gegnir því hlutverki að vernda höfundarrétt félagsmanna vegna birtingar á verkum þeirra til almennings og vegna annarrar hliðstæðrar notkunar.
Árgjald
Meðlimir í FÍ greiða árgjald sem nú er 18.000 kr. Greiðslu árgjalds er skipt í tvennt og eru greiðsluseðlar sendir í heimabanka í Maí og September ár hvert.
Nemendur í fatahönnunarnámi á háskólastigi geta sótt um nemaaðild. Nemaaðild er frí en nemendur eru ekki fullgildir félagar og hafa t.d. ekki kosningarétt.
Hafa Samband
Fatahönnunarfélag Íslands
Kt. 641001-2950
Tölvupóstfang: fatahonnunarfelag@honnunarmidstod.is
FÍ er með lokaðan umræðuvef á Facebook, „Umræðuvefur Fatahönnunarfélags Íslands“ er aðeins opinn félagsmönnum.
Stjórn Fatahönnunarfélags Íslands 2022 - 2024
Erla Björk Baldursdóttir
Formaður Fatahönnunarfélags Íslandsfatahonnunarfelag@honnunarmidstod.isGuðrún Helga Kristjánsdóttir
Gjaldkeri Fatahönnunarfélags ÍslandsGuðrún Ragna Sigurjónsdóttir
Ritari Fatahönnunarfélags ÍslandsErna Einarsdóttir
Meðstjórnandi Fatahönnunarfélag ÍslandsSigný Þórhallsdóttir
Meðstjórnandi Fatahönnunarfélag ÍslandsRagnheiður Katla Geirsdóttir
Meðstjórnandi Fatahönnunarfélag Íslands