Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Framúrskarandi fögnuður á Hönnunarverðlaunum Íslands 2024

13. nóvember 2024

Það var mikið um dýrðir í Grósku þann 7. nóvember þegar Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent með pompi og pragt. Dagurinn hófst á því að gestir fengu góða innsýn inn í þau níu framúrskarandi og fjölbreyttu verkefni sem tilnefnd voru til verðlaunanna í ár í þremur mismunandi flokkum. Í kjölfarið var svo verðlaunaafhending með tilheyrandi fögnuði.

Það voru þau Búi Bjarmar Aðalsteinsson, vöruhönnuður og Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt sem stýrðu samtali við tilnefnda og sáu svo um að kynna verðlaunaafhendinguna sem fór fram fyrir fullum sal. 

Sigurvegarar verðlaunanna í ár voru Krónan sem hlaut viðurkenningu fyrir Bestu fjárfestingu í hönnun, Gísli B. Björnsson, grafískur hönnuður sem er Heiðursverðlaunahafi ársins, peysan James Cook sem unnin er í samstarfi Helgu Lilju Magnúsdóttur fatahönnuðar og Stephan Stephensen listamanns, fyrir BAHNS er Vara ársins, Smiðja, skrifstofubygging Alþingis eftir Studio Granda er Staður ársins og Börnin að borðinu eftir Þykjó er Verk ársins.

Hönnunarverðlaun Íslands fóru fram í ellefta sinn í ár og veitt í þremur flokkum - Vara - Staður - Verk. Hönnunarverðlaun Íslands eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi nýleg verkefni. Við val á verðlaunahöfum er leitað að verkefnum sem skara fram úr og geta staðið sem fulltrúar þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkefnin endurspegla gæði og vera áhrifarík, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu, áherslu á fagurfræði og fagmennsku í vinnubrögðum. Einnig er horft til hvort verkefnin séu notendavæn, nýskapandi og hafi jákvæð áhrif á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.   

Valgerður Birna Jónsdóttir, hönnuður sá um upplifunarhönnun Hönnunarverðlauna Íslands 2024. Elín Anna Ringsted, matarhönnuður sá um veitingarnar og Lady Brewery sá um barinn. Sérstakar þakkir fá Kaffitár fyrir ljúffengt kaffi og Vaxa fyrir gómsætt og heilnæmt grænmæti.

Hönnunarverðlaun Íslands eru unnin af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu, Samtök iðnaðarins, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Vísindagarða Háskóla Íslands og Grósku

Við óskum tilnefndum aðilum og sigurvegurunum innilega til hamingju og þökkum gestum kærlega fyrir komuna! 

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá deginum frá Aldísi Páls ljósmyndara.

–

Myndataka og framleiðsla: Eldey films

Magnea Guðmundsdóttir og Búi Bjarmar Aðalsteinsson voru kynnar á Hönnunarverðlaunum Íslands 2024
Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2024; Margrét Kristín Sigurðardóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Erling Jóhannesso, Halldór Eiríksson, Sigurlína Margrét Osuala, Eva María Árnadóttir, Sigríður Sigurjónsdóttir. Á myndina vantar Tor Inge Hjelmdal.
Hljómkassar eftir Halldór Eldjárn og Jón Helga Hólmgeirsson var tilnefnd í flokknum Vara ársins
Bókin Eldgos er eftir teiknarann, hönnuðinn og rithöfundinn Rán Flygenring var tilnefnd í flokknun Vara ársins
Grímur eftir hönnuðinn og listamanninn James Merry var tilnefnt í flokknun Verk ársins
Verkefnið Annarsflokks eftir Stúdíó Erindreka og Sigmund Pál Freysteinsson var tilnefnt í flokknum Verk ársins.
Kerlingarfjöll Hálendismiðstöð eftir Hönnunarteymi Bláa Lónsins, Basalt arkitekta og Design Group Italia var tilnefnt í flokknum Staður ársins.
Áfangastaðurinn Þrístapar í Vatnsdal í Húnavatnssýslu eftir Gagarín, Landslag og Harry Jóhannsson var tilnefnt í flokknum Staður ársins.

Tengt efni

  • Smiðja, skrifstofubygging Alþingis er Staður ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2024

  • Peysan James Cook er Vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2024

  • Krónan hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2024

  • Börnin að borðinu er Verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2024

  • Gísli B. Björnsson hlýtur heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2024

Dagsetning
13. nóvember 2024
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir
Ljósmyndari
Aldís Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200