23 umsóknir bárust um merkingar á ferðamannastöðum og friðlýstum svæðum

13. ágúst 2020

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í samstarfi við umhverfis- og auðlindaráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsti í júlí eftir hönnunarteymi til að hanna merkingar, merkingakerfi og merkingahandbók fyrir ferðamannastaði og friðlýst svæði. Umsóknarfrestur rann út í gær, 12. ágúst, og alls bárust 23 umsóknir. 

Verkefnið byggir á stefnumarkandi landsáætlun 2019–2029 og verkefnaáætlun 2019–2021 um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Handbókin verður aðgengileg á netinu og er ætluð bæði opinberum aðilum og einkaaðilum. Merkingarnar og merkingakerfið eiga að byggja á fyrri vinnu við merkingar og áður útgefnar merkingahandbækur.  

Verkefnið snýst um að hanna og samræma merkingar og merkingakerfi fyrir ferðamannastaði og friðlýst svæði og gerð handbókar með hönnunar- og framleiðsluleiðbeiningum fyrir merkingakerfið. Í verkefninu er stuðst við fyrri vinnu við merkingar og áður útgefnar merkingahandbækur ólíkra aðila sem nú er verið að uppfæra, samræma og aðlaga að nýjum tímum.

Valnefnd fer nú yfir allar umsóknir, og velur í kjölfarið 2-5 teymi sem fá tækifæri til hitta valnefnd og kynna sig, nálgun við verkefnið, hugmyndafræði og fyrri verk. Úr þeim hópi verður eitt teymi valið til að vinna verkefnið. Gert er ráð fyrir að niðurstaða valnefndar liggi fyrir 28. ágúst næstkomandi. Vinna hönnunarteymis hefst í kjölfarið og áætlað er að henni ljúki 10. desember 2020. 

Hér má sjá tímalínu verkefnisins

18. ágúst          Tilkynnt um forval valnefndar

25. ágúst          Valin teymi hitta valnefnd og kynna nálgun sína við verkefnið 

28. ágúst          Tilkynnt hvaða teymi fær verkefnið

15. desember   Áætluð verklok

 

Valnefndina skipa

Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur

Einar Sæmundsen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, landslagsarkitekt

Jón Björnsson, þjóðgarðsvörður í Þjóðgarðinum Snæfellsjökull

Kristján Örn Kjartansson, arkitekt

Ragnar Freyr Pálsson, grafískur hönnuður 

Stefanía Ragnarsdóttir, fræðslufulltrúi í Vatnajökulsþjóðgarði, grafískur hönnuður

Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt

Áherslur valnefndar eru eftirfarandi: 

●  Þverfagleg breidd teymis

●  Hugmyndafræði og nálgun við verkefnið

●  Heildræn hugsun

●  Fyrri verk og geta til að leysa stór og flókin verkefni

●  Áhugi og þekking á náttúru landsins 

●  Samsetning teymis, m.a. með tilliti til kynjaskiptingar

Hér er hægt að lesa meira um verkefnið

Dagsetning
13. ágúst 2020
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Tögg

  • Greinar
  • Góðar leiðir
  • Samkeppni