Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Aðförin í öndvegi - hádegismálþing um fjölbreyttar samgöngur og borgarskipulag

16. september 2024

Samtal um samgöngumál í samgönguviku. Elliðaárstöð, Orka náttúrunnar og Veitur standa fyrir málþingi í hádeginu miðvikudaginn 18. september á Á Bístró í Elliðaárstöð þar sem umferð hjólandi og gangandi er einmitt í öndvegi. Meðal þeirra sem koma fram er Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt og Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður.

Fundarstýra er Rún Ingvarsdóttir, samskiptastýra Veitna og verður málþinginu streymt hér á Facebook-eventinum.

Vinsamlegast skráið ykkur hér.

Fjölbreytt erindi um vistvænar samgöngur og borgarskipulag út frá ýmsum hliðum.

  • Mannlíf, byggð og bæjarrými.

Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, Teiknistofan Stika

Leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur í þéttbýli voru gefnar út í fyrra. Leiðbeiningarnar voru samstarfsverkefni Skipulagsstofununar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH). Vandað skipulag og hönnun bæjarrýma er mikilvægur þáttur þess að stuðla að sjálfbærri þróun og lífsgæðum fólks. Með samþættingu góðrar byggðar og vistvænna samgangna má móta eftirsóknarvert umhverfi til lífs og starfa og um leið ná fram ávinningi í loftslagsmálum. Annar af höfundum skýrslunnar, Magnea Guðmundsdóttir, ætlar að veita okkur innsýn í vinnuna og niðurstöður.

  • Hlaupið í skarðið: deilihagkerfisvætt örflæði sem almenningsamgöngur í smærri borgum.

Eyþór Máni Steinarsson, framkvæmdastjóri Hopp

Virka deilihagkerfisvæddar samgöngur best í smærri byggðum og geta þær komið inn sem "kítti" í almenningsamgöngur smærri byggða þar sem borgir geta ekki eða vilja ekki fjárfesta í öðrum lausnum á borð við BRT, léttlestir, eða neðanjarðarlestir?

Bílablindan í borginni.

Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður hjá Pláss

Hvaða áhrif hefur bílablindan haft á samfélagið, daglegt líf og umhverfi? Hvernig hafa borgir og bæjarfélög mótast eftir þörfum bíla? og hvaða ráð höfum við til að breyta þessu?

Verið öll hjartanlega velkomin og boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi.

Viðburður á Facebook

Tengt efni

  • HönnunarMars 2025 - umsóknarfrestur lýkur á miðnætti þann 17. nóvember.

  • HJARK + sastudio hljóta fyrstu verðlaun í skipulagssamkeppni um nýtt hverfi í Vík í Mýrdal

  • Salóme Guðmundsdóttir í stjórn HönnunarMars

Dagsetning
16. september 2024
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Borgarskipulag
  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200