Bóka- og aðventugleði AÍ

Arkitektafélag Íslands býður félagsfólki á aðventubókakvöld miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17 í Fenjamýri, Grósku.
Þrjár nýjar bækur um íslenskan arkitektúr og byggingarsögu verða kynntar á bókakvöldinu:
Sigvaldi Thordarson arkitekt
Albína Thordarson og Pétur H. Ármannsson kynna bók sína um ævi og verk Sigvalda. Bókin hefur að geyma fjölda áður óbirtra ljósmynda og teikninga ásamt ítarlegri skrá yfir verk hans.
Hvernig fangahús varð Stjórnarráðshús
Þorsteinn Gunnarsson segir frá sögu Stjórnarráðshússins og umbreytingu þess úr fangahúsi í aðsetur stjórnvalda.
HÚS
Guðni Valberg kynnir bók sína og Önnu Drafnar Ágústsdóttur sem opnar börnum jafnt sem fullorðnum heim íslenskrar byggingarsögu. Þar segja 40 ólík hús sögu af heimilum og lífi fólks frá landnámi til dagsins í dag, með teikningum eftir Atla Sigursveinsson og Diddu Flygenring.
Boðið verður upp á jólalegar veitingar og létt spjall um bækurnar. Einnig verður hægt að kaupa áritaðar bækur á viðburðinum.
Við hlökkum til að eiga með ykkur notalega stund í aðdraganda aðventunnar.


