Aðalfundur Arkitektafélags Íslands 2026

Aðalfundur Arkitektafélag Íslands verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 17:00 í Grósku, í salnum Fenjamýri á jarðhæð. Fundinum verður einnig streymt fyrir þau sem ekki eiga heimangengt, svo allir félagsmenn geti tekið þátt óháð staðsetningu.
Á fundinum fara fram hefðbundin aðalfundarstörf. farið verður yfir starf félagsins á síðasta ári og horft fram á veginn. Félagið tekur þeim sem vilja hafa áhrif á félagsstarf AÍ með þátttöku í nefndum félagsins opnum örmum. Áhugasöm sendi tölvupóst á ai@ai.is.
Að fundi loknum verður haldin árshátíð AÍ þar sem léttar veitingar verða í boði. Teiknistofan Tröð, PLAN Studio, Skala Arkitektar og Esja Arkitektar munu svo bjóða gestum í stutta heimsókn á stofur sínar í Grósku. Kvöldinu lýkur í Gróðurhúsinu í Grósku með tónlist, veitingum og góðri stemningu.
Til þess að áætla veitingar biðjum við fólk um að skrá mætingu á aðalfundinn.
Við vonumst til að sjá sem flest félagsfólk mæta, taka þátt — og gleðjast saman! 🎉
📅 Dagsetning: 12. mars 2026
🕘 Tími: 17:00 - 21:00
📍 Staðsetning: Fenjamýri, Gróska

