Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

AÍ og SAMARK boða til funda um höfundarétt arkitekta

7. nóvember 2025
person drafting on blueprint

Arkitektafélag Íslands (AÍ) og SAMARK boða til þriggja funda í nóvember þar sem fjallað verður um höfundarétt arkitekta og hvernig hann birtist í mismunandi aðstæðum.

Sameiginlegur vinnuhópur félaganna hefur unnið drög að tillögum um meðferð og beitingu höfundaréttar arkitekta. Markmið fundaraðarinnar er að kynna þessar tillögur, ræða þær og móta sameiginlega afstöðu fagstéttarinnar.

Í vinnuhópnum sátu Kristján Örn Kjartansson, fyrrverandi stjórnarmaður í Hönnunarmiðstöð, Halldór Eiríksson, formaður SAMARK, Hildigunnur Sverrisdóttir frá LHÍ og Helgi Steinar Helgason, fyrrverandi formaður AÍ. Tillögurnar hafa þegar verið kynntar stjórnum beggja félaga og Myndstef hefur rýnt þær.

 

Ástæða vinnunnar

Ástæða þessarar vinnu er aukin ásælni verkkaupa, einkum opinberra aðila, í höfundarétt arkitekta — oft í formi framsals á rétti að byggingum. Jafnframt er þörf á samræmdri afstöðu fagsins til beitingar réttarins, sem myndi styrkja félögin í viðræðum við verkkaupa og í tengslum við samkeppnir og útboð. Rétt er þó að undirstrika að höfundaréttur er einkaréttur aðalhönnuðar, og að ekkert framsal eða takmörkun hans getur átt sér stað nema með samþykki viðkomandi höfundar. Félögin leitast þó við að móta sameiginlega sýn á hvernig réttinum sé rétt að beita og verja í samskiptum við verkkaupa.

 

Um efni fundanna

Á fundunum verður fjallað um þrjú meginviðfangsefni:

  1. Höfundaréttur í samkeppnum
  2. Höfundaréttur í nýframkvæmdum og samningagerð
  3. Höfundaréttur og breyting byggðra verka

Auk þess verða ræddar hugmyndir um gagnaafhendingu og skyldur og réttindi sem henni tengjast.

Hver fundur hefst á 15–20 mínútna kynningu á viðfangsefninu og í kjölfarið fara fram umræður og ákvarðanataka eftir því sem við á.

 

Hvar og hvenær

Fundirnir verða haldnir í Húsi Atvinnulífsins, Borgartúni 35, í fundarherberginu Hyl, frá kl. 12:00–13:00:

Þriðjudagur 11. nóvember - Höfundaréttur í samkeppnum

Þriðjudagur 18. nóvember - Höfundaréttur í nýframkvæmdum og samningagerð

Þriðjudagur 25. nóvember - Höfundaréttur og breyting byggðra verka

 

Hvetjum félagsfólk AÍ og SAMARK til að mæta og taka virkan þátt í mótun sameiginlegrar stefnu um meðferð á höfundarétti arkitekta.

Dagsetning
7. nóvember 2025

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200