Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

ALARK arkitektar hljóta fyrstu verðlaun í skipulagssamkeppni um Akureyrarvöll

26. maí 2026
Vinningstillaga ALARK arkitekta

Arkitektastofan ALARK arkitektar hlýtur fyrstu verðlaun í samkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis. Alls bárust 16 tillögur í samkeppnina sem Akureyrarbær efndi til í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Ein tillaga reyndist ógild og fjallaði dómnefnd því um 15 gildar tillögur.

Tilgangur samkeppninnar var að kalla eftir spennandi landslagshönnun og arkitektúr fyrir svæðið, auk þess að fá fram raunhæfa tillögu að miðbæjarumhverfi sem væri eftirsóknarvert til búsetu og lifandi vettvangur fyrir fjölbreytta starfsemi í hjarta Akureyrarbæjar.

Megináherslur dómnefndar

Við mat á tillögum lagði dómnefnd meðal annars áherslu á heildaryfirbragð, notagildi og vandaðan arkitektúr bygginga og útisvæða, með hliðsjón af staðaranda og veðurfarsskilyrðum.

Einnig var horft til þess að uppbygging miðsvæðisins styrkti núverandi innviði bæjarins og tengdi hverfahluta betur saman. Þá var lögð áhersla á aðgengis-, umferðar- og öryggismál, tengingar við stígakerfi Akureyrarbæjar, sögu Akureyrarvallar og kennileiti svæðisins, svo sem klappir og gróður.

Dómnefnd lagði jafnframt áherslu á umhverfissjónarmið og sjálfbærni við hönnun og efnisval, auk þess sem tillögur skyldu vinna með og draga úr áhrifum Glerárgötu.

Vinningstillagan, Akureyrarvöllur, er að mati dómnefndar heildstæð og sannfærandi tillaga sem skapar eftirsóknarvert miðbæjarsvæði og gott búsetuumhverfi. Tillagan vinnur vel með staðaranda og sögu svæðisins, styrkir tengingar við nærliggjandi hverfi og endurvekur Akureyrarvöll sem lifandi samkomustað.

Í dómnefndaráliti segir m.a. um verðlaunatillöguna: Helsti styrkur tillögunnar felst í skýrri heildarsýn og raunhæfri nálgun á þróun svæðisins. Að mati dómnefndar myndast gott samspil milli miðbæjar og norðursvæða þannig að til verður skýr tengipunktur. Sterk landslagshönnun og sögulegar skírskotanir eru bæði aðlaðandi og raunhæfar í rekstri með eðlilegu viðhaldi.

Í öðru sæti var tillaga marimo arkitekta, Brúum hjarta Akureyrar, auðkennd #481839, og í þriðja sæti var tillaga Teikna - Teiknistofu Arkitekta, Vallartorg, auðkennd #505020.

Í dómnefnd sátu:

Tilnefnd af kaupanda:
Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar og formaður skipulagsráðs, formaður dómnefndar
Hlynur Jóhannsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins á Akureyri
Sindri Kristjánsson, áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar í skipulagsráði

Tilnefnd af Arkitektafélagi Íslands:
Borghildur Sölvey Sturludóttir, arkitekt FAÍ, HMS

Tilnefnd af Félagi íslenskra landslagsarkitekta:
Fríða Björg Eðvarðsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA

Ritarar dómnefndar:
Einar Sigþórsson, verkefnastjóri skipulagsmála hjá Akureyrarbæ
Rebekka Rut Þórhallsdóttir, fulltrúi skipulags- og byggingarmála hjá Akureyrarbæ

Trúnaðarmaður dómnefndar:
Gerður Jónsdóttir

Dómnefnd var einróma í niðurstöðu sinni og óskar vinningshöfum til hamingju með góðar tillögur og þakkar keppendum öllum fyrir faglega unnar og fjölbreyttar tillögur.

  • Dómnefndarálit í heild sinni

1. sæti: Akureyrarvöllur - tillaga #20414

Höfundar tillögu: ALARK arkitektar - Kristján Ásgeirsson, Óli Geir Kristjánsson, Sturla Hrafn Sólveigarson

Smelltu hér

2. sæti: Brúum hjarta Akureyrar - tillaga #481839

Höfundar tillögu: marimo arkitektar - Anna Leoniak, Agnes Krzysztonek, Helga Björg Kjerúlf og Hildur Gunnarsdóttir

Smelltu hér

3. sæti: Vallartorg - tillaga #505020

Höfundar tillögu: Teikna - Teiknistofa Arkitekta - Bjarni Kristinsson, Gunnar Örn Egilsson, Helga Hrönn Þorsteinsdóttir, Hildur Guðmundsdóttir. Aðstoð og ráðgjöf: Anton Svanur Guðmundsson, Árni Ólafsson, Jóhann Einar Jónsson, Lazar Anic og Sigrún Harpa Þórarinsdóttir

Smelltu hér

Völlur í vexti - tillaga #68610

Höfundar tillögu: EFLA - Birta Fönn K. Sveinsdóttir, Hlynur Hugi Jónsson, Íris Stefánsdóttir, Magrét M. Róbertsdóttir og María Björk Gunnarsdóttir

Smelltu hér

Fagraflöt - tillaga #12311

Höfundar tillögu: s. ap arkitektar

Fagraflöt - tillaga #12311

Heimavöllur - tillaga #58855

Höfundar tillögu: Tendra og Landslag

Smelltu hér

Völlur grær - tillaga #042050

Höfundar tillögu: ASK arkitektar - Gunnar Örn Sigurðsson, Helgi Indriðason og Jakob Jakobsson

Smelltu hér

Vallarspor - tillaga #43635

Höfundar tillögu: Nordic Office of Architecture - Elías Beck Sigurþórsson, Jóhanna Helgadóttir, Barbara Zofia Sopolinska, Pétur Andreas Maack, Pála Minný Ríkharðsdóttir, Svana Rún Hermannsdóttir og Vilhjálmur Leví Egilsson

Smelltu hér

Hreyfillinn - tillaga #904081

Höfundar tillögu: A2F arkitektar - Aðalheiður Atladóttir, Falk Krüger, Björg Elva Jónsdóttir og Egill Rúnarsson. JUCA architektur + landschaftsarchitektur - Judith Brücker

Smelltu hér

Skógarvöllur - tillaga #60101

Höfundar tillögu: Kollgáta arkitektúr - Ingólfur Guðmundsson, Andrea Sif Hilmarsdóttir, Ragnar Freyr Guðmundsson. KRADS arkitektar - Kristján Örn Kjartansson, Kristján Eggertsson, Gísli Hrafn Magnússon, Davíð Snær Sveinsson, Maren Kjartansdóttir. Idefix landscape architecture - Marnix Vink, Robert-Jan van der Linden, Klaudio Ruci. Studio Steinarsson - Orri Steinarsson og Julio Gil.

Smelltu hér

Nýr Akureyrarvöllur - tillaga #4826

Höfundar tillögu: SASTUDIO + HJARK - Tiago Sá, Hulda Jónsdóttir, Stefany Trojan, Martina Cutillo, Alberto Galvani

Smelltu hér

Vangur - tillaga #12545

Höfundar tillögu: Atrium arkitektar - Harpa Heimisdóttir, Stefanía Sigfúsdóttir. Urban arkitektar - Gunnþóra Guðmundsdóttir

Smelltu hér

Hólmasól - tillaga #Hólmasól

Höfundar tillögu: Magnús Jensson, Juliana Werneburg og Daníel Ólafsson

Smelltu hér

Hjarta Akureyrar - tillaga #56399

Höfundar tillögu: ARKÍS arkitektar - Arnar Freyr Sigurðsson, Arnar Þór Jónsson, Björn Guðbrandsson, Carolina Serafim og Erna Þráinsdóttir

Hjarta Akureyrar - tillaga #56399

Í blóma - tillaga #13231

Höfundar tillögu: SEI Studio

Smelltu hér
Dagsetning
26. maí 2026

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Architecture

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200