Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Arnhildur Pálmadóttir tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024

1. júlí 2024

Arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir hlýtur tilnefningu til Umhverfisverðlauna Norðurlandsráðs 2024 fyrir þverfaglegt samstarf og fókus á endurvinnanlegt byggingarefni. Alls eru átta tilnefningar og verðlaunin verða afhent í Reykjavík í haust.

Í ár eru umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs veitt fyrir sjálfbæra byggingastarfsemi með áherslu á umbreytandi (einnig kallað aðlögunarhæfa) endurunna byggingarlist og endurnýjanlega byggingastarfsemi.

Byggingarframkvæmdir valda um 40% af losun koltvísýrings á heimsvísu, sem er ósjálfbær tala á tímum aukinnar eftirspurnar eftir byggingum.

Tilkynnt verður um hver hlýtur umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2024 í haust, nánari dagsetning verður auglýst síðar en verðlaunin verða afhent á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík. Verðlaunahafinn hlýtur Nordlys-styttuna og 300.000 danskar krónur.

Tilnefningar til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

Lestu meira um tilnefningar og verðlaunin hér.

Ýttu hér

Um tilnefninguna:

Með frumkvöðla hugsun og þverfaglegt samstarf hefur Arnhildur Pálmadóttir veitt innblástur og hvatt til breytinga í borgarskipulagi, arkitektúr og byggingaframkvæmda. Í verkefnum sínum fókuserar hún á endurvinnanlegt byggingaefni og sjálfbærni bygginga til framtíðar.

Arnhildur er sap arkitekt sem leggur áherslu á samþættingu og lausnir á ólíkum þáttum verkefna með áherslu á langtímanotkun. Arnhildur rekur íslenska útibú danska arkitekta- og nýsköpunarfyrirtækisins Lendager sem sérhæfir sig í sjálfbærni og hringrásarfræði í byggingariðnaði. Hún kennir einnig við hönnunardeild Listaháskóla Íslands, hefur skrifað greinar og texta tengda nýsköpun, tækni og sjálfbærni í hönnun og byggingariðnaði og haldið fyrirlestra um efnið.

Arnhildur hefur hannað byggingar með helmingi minna kolefnisspor en hefðbundnar byggingar. Hún rannsakar möguleika á að stjórna virku hraunflæði í form til að skapa byggingar, hún notar LCA markvisst sem ákvörðunartæki í öllu hönnunarferlinu, hannar með hringrásarfræði í huga og með áherslu á að skapa tækifæri til að lifa sjálfbærari lífsstíl.

Heimasíða - s.ap arkitektar

Tengt efni

  • ALARK arkitektar leita að arkitekt eða byggingarfræðingi

  • Pítsastund og Hæ/Hi opnuðu á 3daysofdesign í Kaupmannahöfn

  • Aðalfundur Miðstöðvar hönnunar og arkitektúr og skýrsla 2023/2024

Dagsetning
1. júlí 2024
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200