Sýningin Eitraðar grundir eftir Bernard Khoury

Arkitektinn og listamaðurinn Bernard Khoury opnar sína fyrstu einkasýningu á Íslandi í Listasafni Árnesinga. Sýningin stendur yfir frá 7. febrúar til 23. ágúst 2026.
Samhliða einkasýningu Khoury verður sett upp lítil en áhugaverð sýning á teikningum eftir Högnu Sigurðardóttur, arkitekt, sem sýna sumarbústað sem aldrei var byggður. Teikningarnar veita einstaka innsýn í hönnunarhugsun og sköpunarferli Högnu.