Bóka- og aðventugleði AÍ

Bóka- og aðventugleði Arkitektafélags Íslands verður haldin miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17 í Fenjamýri, Grósku. Þar kynna arkitektarnir Albína Thordarson, Pétur H. Ármannsson, Þorsteinn Gunnarsson og Guðni Valberg þrjár nýjar bækur um íslenskan arkitektúr og byggingarsögu.
Boðið verður upp á jólalegar veitingar og létt spjall um bækurnar að kynningum loknum. Hægt verður að kaupa áritaðar bækur á staðnum.
Sigvaldi Thordarson arkitekt
Sigvaldi Thordarson (1911–1964) er einn þekktasti arkitekt eftirstríðsáranna á Íslandi. Í bókinni rekur Albína Thordarson sögu föður síns og verka hans út frá eigin upplifun. Bókin er unnin í samstarfi við Pétur H. Ármannsson, sem ritar aðfaraorð og kafla um náms- og mótunarár Sigvalda. Bókin varpar ljósi á þróun íslenskrar byggingarlistar á 20. öld og hefur að geyma fjölda áður óbirtra ljósmynda og teikninga ásamt skrá yfir verk Sigvalda.
Hvernig fangahús varð Stjórnarráðshús
Fangahúsið á Arnarhóli var reist á árunum 1766–1771. Því var breytt í bústað stiftamtmanns árið 1820 og síðan í Stjórnarráðshús árið 1904. Árið 1997 fóru fram byggingarsögulegar rannsóknir á húsinu í aðdraganda þess að það var allt tekið undir forsætisráðuneytið. Í bókinni rekur Þorsteinn Gunnarsson þessa merku sögu og umbreytingar hússins í máli og myndum.
HÚS
Guðni Valberg kynnir bók sína og Önnu Drafnar Ágústsdóttur sagnfræðings. Í bókinni kynnast börn og fullorðnir 40 ólíkum húsum sem hvert á sína sögu um heimili og líf fólks á Íslandi frá landnámi til okkar daga. Atli Sigursveinsson og Didda Flygenring myndskreyttu bókina.


