Bóka- og aðventugleði AÍ

Bóka- og aðventugleði Arkitektafélags Íslands verður haldin miðvikudaginn 10. desember kl. 20:00 í Fenjamýri, Grósku. Andri Snær Magnason og Pétur H. Ármannsson munu kynna nýútkomnar bækur sínar.
Léttar veitingar verða í boði, m.a. jólaglögg og smákökur.
Öll hjartanlega velkomin!
Jötunsteinn
Jötunsteinn, steyptur hellusteinn sem til stendur að leggja í gangstétt, þýtur í átt að bílrúðu. Fyrir innan hana situr stórtækur verktaki. Úti stendur bugaður arkitekt. Tíminn silast áfram sekúndubrot fyrir sekúndubrot.
Þrjátíu ár eru síðan Andri Snær steig fram á ritvöllinn og skipaði sér í hóp eftirtektarverðustu höfunda landsins. Í þessari kröftugu nóvellu er Jötunsteini kastað inn í heita umræðu um fegurð í borg sem er smám saman að hjúpast svartri klæðningu og gráu þverliggjandi bárujárni. Sagan hefur þegar komið út á dönsku, ítölsku og ensku og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur.
Gunnar Hansson: Arkitektinn og verk hans / The Architect and his Works
Gunnar Hansson (1925 – 1989) var einn af þeim arkitektum sem ruddi nýjum áherslum leið inn í húsbyggingar og hverfisskipulag hérlendis. Hafa nokkur verka hans verið valin í úrvalsflokk þess sem hæst ber í íslenskum arkitektúr á seinni hluta 20. aldar. Pétur H. Ármannsson skrifar um feril og verk Gunnars og skoðar þau í samhengi alþjóðlegs arkitektúrs um leið og hann varpar ljósi á ævi hans og samtíma.
Bókin inniheldur myndir af öllum helstu verkum Gunnars, auk fjölda húsateikninga arkitektsins sjálfs sem komið hafa fyrir augu afar fárra hingað til og varpa forvitnilegu ljósi á einn af okkar fremstu arkitektum.
Hvar: Fenjamýri í Grósku
Hvenær: Miðvikudaginn 10. des. kl. 20:00