Bókagjöf frá Arkitektafélaginu til Listaháskóla Íslands

Bókagjöf frá Arkitektafélaginu til Listaháskóla Íslands
Um er að ræða 130 eintök af bókinni Leiðsögn um íslenska byggingarlist sem Arkitektafélag Íslands gaf út þegar Reykjavík var ein af níu menningarborgum Evrópu árið 2000. Um 250 verk hljóta umfjöllun í ritinu sem endurspegla fjölbreytni og grósku íslenskrar byggingarlistar. Þetta er vandað og sígilt leiðsögurit og er gjöfin ætluð nemendum í arkitektúrdeild Listaháskólans til fróðleiks og ánægju.
Fyrir hönd Arkitektafélags Íslands afhenti Dennis Davíð Jóhannesson, sem ritstýrði leiðsöguritinu, Massimo Santanicchia, deildarforseta arkitektúrdeildar Listaháskólans, bækurnar í húsakynnum Listaháskólans.