Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Búðarborð eftir Rögnu Ragnars og Erm stólar í nýrri verslun 66°Norður á Hafnartorgi

3. ágúst 2022

Íslenska hönnunarfyrirtækið 66°Norður hefur opnað nýja verslun á Bryggjugötu 7 á Hafnartorgi. Verslunin er hönnuð af Basalt arkitektum en þar má einnig finna búðarborð eftir Rögnu Ragnarsdóttur og Erm stólana eftir Valdísi Steinarsdóttur og Arnar Inga Viðarsson. 

Innblástur Basalt í hönnun búðarinnar var  sóttur í íslenskt veður, umhverfi og skírskotun í hafið og arfleifð 66°Norður. Lýsingin er skírskotun í veðurkort.

Búðarborðið er með íslenskri flóru eftir hönnuðinn Rögnu Ragnars. Í borðplötunni eru þurrkaðar blómajurtir og hliðarnar steyptar úr svörtum sandi.

Í mátunarklefum búðarinnar má finna Erm stólana eftir hönnuðina Valdísi Steinars og Arnari Inga. Stólarnir, sem voru frumsýndir á HönnunarMars 2022, eru gerðir úr ermum úr úlpum sem ekki er hægt að gera við. 

Víða um búðina má svo finna stóra skúlptúra sem eru hluti af sýningu listakonunnar Öldu Ægisdóttur, Útópíu. Verkin eru innblásin af frumum, bakteríum, plöntum og skordýrum, og dregur fram þá litlu heima sem leynast allt í kringum okkur. 

Tengt efni

  • Viðburðir fyrir umhverfið á HönnunarMars

  • Iðnaðarhampur sem byggingarefni, fjölnota fatalína, ermi sem stóll og ilmsinfónía meðal styrkþega Hönnunarsjóðs

  • Stikla - Ragna Ragnarsdóttir

Dagsetning
3. ágúst 2022

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200