Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Skipulagsdagurinn 2021

2. nóvember 2021

Framtíðin verður í fyrirrúmi á Skipulagsdeginum, árlegri ráðstefnu Skipulagsstofnunar um skipulagsmál og þróun þeirra. Skipulagsdagurinn verður haldinn 12. nóvember í Salnum í Kópavogi og hefst dagskráin kl. 9.00.

Yfirskriftin er Skipulag fyrir nýja tíma – og verður sjónum beint sérstaklega að þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir með tilliti til lífsgæða, samgöngumiðaðs skipulags, sjálfbærni í byggðu umhverfi og aðlögunar vegna loftslagsbreytinga og náttúruvár. Ráðstefnan er að vanda haldin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. 

Deginum verður skipt í þrjú meginþemu, en við byrjum daginn á hugleiðingu Sverris Norland rithöfundar sem nýlega gaf út bókina Stríð og klið, þar sem hann veltir fyrir sér nútímanum út frá loftslagsmálum og tæknibreytingum. Síðan taka við erindi um Aðlaðandi og sjálfbæra byggð þar sem fjallað verður um leiðir til að skipuleggja okkar byggða umhverfi með þarfir fólks í huga, þar sem gæði húsnæðis, fagurfræði, aðgengi að greiðum samgöngum og nálægð við græn svæði verða ofarlega á baugi. Meðal frummælenda verður Ruth Reichstein, ráðgjafi á skrifstofu forseta Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem mun segja frá New European Bauhaus, sem er átak sem ESB hleypti af stokkunum árið 2020 um hið byggða umhverfi út frá fagurfræði, nýsköpun, tækni og umhverfismálum. Við taka síðan framlög sem setja áherslur New European Bauhaus í íslenskt samhengi beint og óbeint. Meðal annars verða kynnt nokkur skipulagsverkefni úr ólíkum aðstæðum og stöðum á landinu þar sem unnið hefur verið á eftirtektarverðan hátt með sjálfbærni, fagurfræði og notagildi.

Eftir hádegi verður athyglinni fyrst beint að Skipulagi og aðlögun fyrir breytta tíma og litið til þeirra miklu áskorana sem við stöndum frammi fyrir við aðlögun byggðar og samfélags vegna afleiðinga loftslagsbreytinga. Í framlögum frá Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og nokkrum sveitarfélögum verður rætt um hvernig við getum best séð fyrir og unnið út frá þeim áskorunum sem umhverfisbreytingar og náttúruvá fela í sér fyrir skipulagsgerð og sagt frá skipulagsverkefnum frá ólíkum stöðum á landinu.

Dagskránni eftir hádegi lýkur síðan með pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Skipulag fyrir nýja öld, þar sem rætt verður vítt og breitt um skipulagskerfið og framkvæmd skipulagsmála út frá viðfangsefnum og áskorunum okkar samtíma og framtíðar. Kveikjan er meðal annars að í ár eru 100 ár liðin frá setningu fyrstu skipulagslaganna og þannig má segja að upp sé að renna ný skipulagsöld.

Fundarstjóri er Hrafnkell Proppé.  

Boðið verður upp á hádegisverð og kaffiveitingar. Streymt verður af viðburðinum á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar. Ekki er þörf á að skrá sig í streymi. Gestir eru hvattir til að mæta tímanlega og nýta sér vistvæna ferðamáta. 

Skráning á Skipulagsdaginn 12. nóvember

Kl. 9.00-16.00 í Salnum í Kópavogi

Smelltu hér til að skrá þig

Tengt efni

  • Samtal um framtíð byggða á hönnun, hugviti og nýsköpun

  • Við erum öll almannavarnir fær sérstakt hrós dómnefndar Hönnunarverðlauna Íslands 2021

  • Sigurður Oddsson, Matthías Rúnar Sigurðsson og Gabríel Benedikt Bachmann hljóta Hönnunarverðlauna Íslands 2021 fyrir Hjaltalín - ∞

Dagsetning
2. nóvember 2021
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Skipulag

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200