Erindi um arkitektúr: 01 SAMFÉLAG

Arkitektafélag Íslands hefur göngu nýrrar fræðsluraðar um arkitektúr og gæði byggingarlistar í dag, fimmtudaginn 8. október. Auður Hreiðarsdóttir frá Esju Arkitektum flytur fyrsta erindið á Parketinu í Grósku kl. 17. Öll eru velkomin.
Fræðsluröðin Erindi um arkitektúr samanstendur af fimm opnum viðburðum yfir veturinn 2026–2027. Þar verður fjallað um fegurð, umbreytingu, nýtingu, samfélag og öndun — grunngildi sem móta gott manngert umhverfi. Markmiðið er að dýpka umræðu um byggingarlist og skapa vettvang fyrir samtal um gæði hennar og áhrif á daglegt líf.
Fyrsta erindið ber yfirskriftina Samfélag. Auður Hreiðarsdóttir fjallar um samfélag í víðum skilningi og tengsl byggingarlistar við samfélagsleg málefni.
Að erindinu loknu verður boðið upp á vínglas, nasl og afslappað samtal. Við hvetjum félagsfólk og öll sem hafa áhuga á arkitektúr og umhverfinu okkar til að koma og taka þátt.
Staður og stund: Parketið í Grósku, fimmtudaginn 8. október 2026, kl. 17–19.
Dagskrá:
- 17–18: Erindi og umræður.
- 18–19: Léttar veitingar og spjall.