Ert þú með athugasemd við breytingu á leiðbeiningum í byggingarreglugerð?
Húsnæðis-og mannvirkjastofnun hefur sett á vefinn drög að endurútgáfu vegna breytinga á leiðbeiningum fyrir gr. 9.5.4 í byggingarreglugerð um eina flóttaleið frá notkunareiningu. Hagsmunaaðilum gefst kostur á að kynna sér efni leiðbeininganna og senda athugasemdir, leiðréttingar og viðbætur.
Samkvæmt 1. tölul. 5. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012 annast Húsnæðis- og mannvirkjastofnun gerð leiðbeininga um nánari framkvæmd byggingarreglugerðar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra hagsmunaaðila.