Ert þú nemi í arkitektúr / landslagsarkitektúr og vilt taka þátt í spennandi vinnustofu í Tallinn í lok nóvember?

Í tillefni þess að á næsta ári eru 35 ár síðan Ísland var fyrst þjóða til að viðurkenna sjálfstæði Lýðveldisins Eistlands ætlar Skipulagssvið Tallinn-borgar að efna til nemendasamkepnni um tímabundið hönnunarinngrip á „Íslandstorginu“ í Tallinn (Iceland Square). Samkeppnin verður í formi þriggja daga vinnustofu í Tallinn dagana 26.-28. nóvember 2025. Þar vinna fimm hópar að tillögu að breytingu eða inngripi sem gert verður á torginu næsta sumar. Þátttakendur eru nemendur í arkitektúr úr eistneskum háskólum og einnig er óskað eftir fimm nemendum frá Íslandi, sem verður deilt niður á hópana fimm. Flug og gisting er greidd að fullu fyrir þátttakendur auk þess að allir hópar hljóta eftirfarandi peningaverðlaun í lok vinnustofunnar:
1.verðlaun €3000
2.verðlaun €2000
3.verðlaun €1000
4-5.verðlaun €500
Nánar um verkefnið:
Íslandstorg stendur fyrir framan volduga byggingu utanríkisráðuneytis Eistlands á jaðri sögulegs miðbæjar Tallinnborgar. Til stendur að efna til stærri samkeppni um borgarhönnun svæðisins í heild innan næstu fimm ára. Torgið er því einskonar „torg í biðstöðu“ og er hugmyndin að vinningstillagan verði raungerð næsta vor og fái að standa þar til framtíðaráform svæðisins liggja fyrir. Torgið er í dag hrátt og eyðilegt og hefur litlar tengingar við umhverfi sitt.
Kennarar á vinnustofunni eru þær Anna Karlsdóttir arkitekt FAÍ og Birta Fróðadóttir arkitekt FAÍ báðar meðlimir í Slökkvistöðinni Gufunesi.
Tímasetning: 25.-29.nóv. (25+29 eru ferðadagar)
Fyrir hverja: Nemendur í arkitektúr og landslagsarkitektúr á BA eða MA stigi.
Umsókn: 200 orða umsóknartexti + mynd af eigin verki sendist á slokkvistodin@gmail.com
Umsóknarfrestur: 23. október kl. 00.00