Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Fatamerkið AFTUR tilnefnt til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2019

9. september 2019

Íslenska fatamerkið AFTUR hlýtur tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2019 þar sem þemað er sjálfbær neysla og framleiðsla - sem er tólfta sjálfbærnismarkmið Sameinuðu þjóðanna. 



„Á okkar tímum er umræðan um loftslagsmál oft á neikvæðum nótum, og skiljanlega, verkefnin sem hafa hlotið tilnefningu í ár eru leiðarljós sem gefa framtíðinni bjartari blæ. Þau bera hvert um sig vitni um einstakt hugvit og útsjónarsemi og virka sem hvatning til okkar allra til að skapa eitthvað nýtt og feta aðrar slóðir,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Íslands, þegar hann kynnti verkefnin sem tilnefnd eru til umhverfisverðlaunanna í ár á lýðræðishátíðinni LÝSU á Akureyri.

Eins og segir í tilkynningu frá Norðurlandaráði var AFTUR stofnað árið 1999 með það að leiðarljósi að endurnýta textíl til hönnunar á tímalausum fatnaði út frá hugmyndafræðinni „slow fashion“. Slagorð AFTUR „endurvinnið eða deyið“ er vel í samræmi við tíðarandann núna þar sem einugis 500 grömm af hverju framleiddu tonnu af textíl eru endurseld. 


Ýttu hér til að lesa meira um tilnefningu AFTUR.

Sænski umhverfisaktívistinn Greta Thunberg er einnig meðal tilnefndra og þess má geta að annað fatamerki er á lista tilnefndra í ár en það er færeyska fatamerkið GUDRUN&GUDRUN sem nýtir færeyska lambaull og gærur sem áður var úrgangsvara og gerir prjónapeysur. Meira hér.

Ýttu hér til að lesa um allar tilnefningarnar.

Norðurlönd eru með stærstu neytendum heims þegar kemur að efnisfrekum varningi og þjónustu og markmið verðlaunanna er að heiðra snjöllustu og árangursríkustu verkefnin á Norðurlöndum sem leggja grunn að sjálfbærari framtíð.

„Sjálfbær neysla og framleiðsla snertir mörg svið samfélagsins. Það var því einstaklega ánægjulegt að sjá hversu fjölbreyttar tillögur bárust. Öll þessi góðu verkefni og raddir sýna glöggt að Norðurlönd geta breytt neyslumynstri sínu,“ segir Ethel Forsberg, formaður dómnefndarinnar.  

Fylgstu með AFTUR á Facebook hér.

Tengt efni

  • Stikla - Bobies by USEE STUDIO

  • Íslensk flík - vitundarvakning um íslenska fatahönnun

  • Hönnunarsjóður 3 úhlutun 2019 I 15 verkefni fá ferðastyrk

Dagsetning
9. september 2019

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Sjálfbærni
  • Fatahönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200