Félagsfundur: Útboð og samkeppnir

Arkitektafélag Íslands boðar til félagsfundar um fyrirkomulag opinberra útboða og samkeppna og áhrif þess á starfsskilyrði arkitekta. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 19. október á milli kl. 17-18 í Fenjamýri, Grósku.
Rætt verður um kröfur til þátttakenda, umfang vinnu á fyrstu stigum og aðgengi arkitektastofa af ólíkri stærð að verkefnum. Hvernig má tryggja að ferlin séu gagnsæ og skilvirk, nýti tíma og sérþekkingu vel og skapi svigrúm fyrir fjölbreyttar og vandaðar tillögur?
Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt FAÍ, verður með innlegg og leiðir samræðurnar.
Markmið fundarins er að kalla fram reynslu og sjónarmið félagsfólks og móta sameiginlegar áherslur AÍ um leiðir til úrbóta.
Mánudaginn 19. október, kl. 17:00–18:00
Fenjamýri, Grósku