Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

FÍLA Á HÖNNUNARMARS - ÞAR SEM HVERFIÐ LIFNAR VIÐ

22. maí 2026

Á HönnunarMars stóð Félag íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA fyrir vel heppnuðum viðburði, þar sem gengið var um Urriðaholt í Garðabæ, hverfi sem vakið hefur athygli fyrir metnaðarfullt skipulag þar sem lögð er áhersla á tengsl milli byggðar og náttúru. Í gönguferðinni var sjónum beint að því hvernig landslagshönnun, græn svæði og leikrými móta hverfið og daglegt líf íbúa þess.

Gangan hófst við Urriðaholtsskóla þar sem lóðin var skoðuð. Þaðan var gengið um hverfið eftir grænum tengingum sem liggja í gegnum byggðina og tengja holtið við Urriðavatn. Á leiðinni var komið við á leikskólalóð Urriðabóls og opin svæði skoðuð þar sem sjá mátti hvernig rými fyrir leik, útivist og samveru hafa verið mótuð.

Svæðin voru hönnuð af landslagsarkitektastofunum Landslagi, Landformi og Teiknistofu Norðurlands og fulltrúar þeirra sögðu frá hugmyndum og hönnun á bak við svæðin og hvernig þau mynda samfellda heild í skipulagi hverfisins. Fjallað var um rými milli bygginga – stíga, leiksvæði, gróður og blágrænar ofanvatnslausnir – og hvernig þau tengja hverfið saman.

Frábær mæting var frá íbúum á öllum aldri, félagsfólki sem og öðru fagfólki og sköpuðust skemmtilegar samræður um umhverfið, leikinn og mannlífið í hverfinu.


Takk fyrir komuna!

Dagsetning
22. maí 2026
Höfundur
Daníel Jakobsson

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Landslagsarkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200