Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

FÍT verðlaunin 2026 – Verðlaunahafar

27. febrúar 2026

FÍT verðlaunin 2026 voru afhent í Grósku í kvöld, föstudaginn 27. febrúar 2026.

Verðlaun í flokki tónlistargrafíkur verða veitt á Íslensku tónlistarverðlaununum sem fram fara í Hörpu og í beinni útsendingu á RÚV miðvikudagskvöldið 18. mars.

Stjórn FÍT þakkar öllum hönnuðum, myndhöfundum og verkkaupum sem sendu inn hjartanlega fyrir þátttökuna. Einnig þökkum við dómnefndnum innilega fyrir þeirra störf.

Sækja kynningarpakka

Aðalverðlaun

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Margrét Aðalheiður Þorgeirsdóttir
Sigurður Oddsson
Sigurður Ýmir Kristjánsson
Kolbeinn Jara Hamíðsson
Guðni Þór Ólafsson
Hólmfríður Benediktsdóttir
Aton

Eydís Blöndal — Texta- og hugmyndasmiður
Guðrún Norðfjörð — Verkefnastjóri

Auglýsingaherferðir

Silfurverðlaun

Upplifðu innlifun
fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands

Margrét Aðalheiður Þorgeirsdóttir
Sigurður Oddsson
Sigurður Ýmir Kristjánsson
Kolbeinn Jara Hamíðsson
Guðni Þór Ólafsson
Hólmfríður Benediktsdóttir

Aton

Eydís Blöndal — Texta- og hugmyndasmiður
Guðrún Norðfjörð — Verkefnastjóri

Falleg þróun á ásýnd sem hefur verið í mótun hjá Sinfóníunni og þetta er sérstaklega skemmtileg viðbót. Dans í letrinu er áberandi, bæði á kyrrum fleti og í hreyfingu sem vinnur markvisst með tónlistinni. Útlitið er vel útfært og virkar þvert á miðla, jafnt á prenti sem skjá. Letrið er mjög gott.

–

Firmamerki

Gullverðlaun

Vesturbyggð

Hörður Lárusson
Davíð Arnar Baldursson
Saga Guðnadóttir

Kolofon

Rúna Dögg Cortez — Hönnunarstofustjóri

Einstaklega vel leyst, bæði í svarthvítu og lit og heldur styrk sínum í ólíkum birtingarmyndum. Myndmálið er skýrt og talar sannfærandi inn í sögulegt samhengi. Framúrskarandi lausn, hönnuð inn í þröngan ramma en útfærslan heppnast afar vel.

Silfurverðlaun

280 Bakarí

Kolbeinn Jara Hamíðsson
Þorgeir K. Blöndal

Merkið byggir á einföldum elementum sem skapa skýra og sterka heild. Úr verður skemmtilegt kerfi sem gefur svigrúm til leiks og er unnið markvisst með í ólíkum miðlum.

Gagnvirk miðlun & upplýsingahönnun

Gullverðlaun

The Nordic Circle
fyrir Norðurlöndin

Gagarín / Kvorning / Rintala Eggertsson

Verkefnastjórn: Exponex
Framleiðslustjórn: Wintenex and Habegger

Verkefni á mögnuðum skala sem skapar umlykjandi upplifun. Útfærslan er fagmannleg, markviss og áferðarfalleg. Leikið er með spennuna milli hins stafræna og lífræna á eftirtektarverðan hátt.

Silfurverðlaun

Lavazza × María Guðjohnsen
fyrir Danól

María Guðjohnsen
Þorvaldur Sævar Gunnarsson
Guðlaugur Aðalsteinsson
Cirkus

Skiltamálun Reykjavíkur

Áhugavert samspil milli tví- og þrívíðra miðla sem gefur verkinu aukna dýpt. Úr verður mjög fallegur og heillandi sjónheimur.

–

Hreyfigrafík

Gullverðlaun

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Margrét Aðalheiður Þorgeirsdóttir
Sigurður Oddsson
Sigurður Ýmir Kristjánsson
Kolbeinn Jara Hamíðsson
Guðni Þór Ólafsson
Hólmfríður Benediktsdóttir
Aton

Eydís Blöndal — Texta- og hugmyndasmiður
Guðrún Norðfjörð — Verkefnastjóri

Samspil hreyfinga og hljóðheims er afar vel heppnað og myndar áhrifaríka heild sem á sérstaklega vel við Sinfóníuhljómsveitina. Hreyfingar leturs og blóma falla eðlilega að viðfangsefninu. Letrið minnir á nótur á blaði og styrkir tengslin við tónlistina. Heildin er leikandi, björt og litrík með dýnamísku yfirbragði og fumlausu flæði.

–

Silfurverðlaun

fyrir Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Viktor Weisshappel Vilhjálmsson
Jakob Hermannsson
Snorri Eldjárn Snorrason
Flóki Sigurjónsson
Strik Studio

Hljóðhönnunin spilar afar vel við mjúkar hreyfingar. Lifandi og grípandi með fumlausu flæði og góðu tempói. Heilsteypt hönnunarkerfi sem virkar fyrir fjölbreytt efni. Vekur forvitni og fær mann til að vilja sjá meira.

–

Leturhönnun

Gullverðlaun

Njörður

Guðmundur Úlfarsson
Mads Freund Brunse
Sigurður Oddsson
Victor Gérard
Aton

Sigurður Ýmir Kristjánsson – 3D Hreyfihönnun
Guðni Þór Ólafsson – 2D Hreyfihönnun
Kjartan Hreinsson – Ljósmyndir
Magnús Óli Sigurðsson – Portrettljósmyndun

Fjölhæft og sérhannað en býr jafnframt yfir nægum blæbrigðum til að nýtast í ólíkum aðstæðum. Hugmyndinni er komið skýrt og sannfærandi til skila. Kinkar um leið kolli til ólíkra skeiða í hönnunarsögunni og setur þau í samtal við samtímann.

–

Silfurverðlaun

Nota
fyrir Aton

Hólmfríður Benediktsdóttir
Sigurður Oddsson
Kolbeinn Jara Hamíðsson
Guðni Þór Ólafsson
Aton

Afar metnaðarfullt verkefni. Leturgerðin er fjölbreytt og blæbrigðarík, gegnir lykilhlutverki í heildarmörkuninni og mótar ásýnd hennar á afgerandi hátt.

Menningar- og viðburðamörkun

Gullverðlaun

Steina: Tímaflakk
fyrir Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur

Þorgeir K. Blöndal
Elín Edda Þorsteinsdóttir

Dagur Eggertsson – leturhreyfing
Elísa Björg Tryggvadóttir – skapandi forritun
Kjartan Hreinsson – ljósmyndun

Ásýndin endurspeglar vel myndheim Steinu en er um leið ný og leyfir verkunum að njóta sín. Grafíkin flæðir um safnið og myndar fjölbreytta heild, þar sem prentað og stafrænt efni talar vel saman. Heildin skapar nýjan myndheim sem undirbýr áhorfandann vel og dregur hann inn. Leturnotkun er framúrskarandi og framúrstefnuleg og upplýsingar á tveimur tungumálum eru bæði skýrar og skemmtilega leystar.

Silfurverðlaun

Lavaforming
fyrir sap arkitekta og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Arnar Freyr Guðmundsson
Birna Geirfinnsdóttir
Studio Studio

Universal Thirst – Gunnar Vilhjálmsson, letur

Hér er vísað á skýran og markvissan hátt í element úr verkinu sjálfu. Letrið á vel við og fellur eðlilega að efninu. Í heild er verkið afar vel heppnað og augljóst að vandað hefur verið til verka í hvívetna.

Mörkun fyrirtækja

Gullverðlaun

280 Bakarí

Kolbeinn Jara Hamíðsson
Þorgeir K. Blöndal

Sterk heildarásýnd sem byggir á fáum en markvissum elementum. Sker sig skýrt frá öðrum bakaríum af svipaðri gerð. Fersk og nútímaleg framsetning. Útfærslan er vönduð á öllum flötum, án þess að skyggja á bakaríið sjálft eða vörurnar. Vísanir eru notaðar á snjallan hátt. Kraftmikið, sérstaklega í ljósi þess hve elementin eru fá. Vel nýtt í ólíkum miðlum.

Gullverðlaun

Ísól

Simon Viðarsson
Anton Jónas Illugason
AJ–S

Kjartan Hreinsson – Ljósmyndir

Skýr og vel heppnuð vísun í praktískan iðnaðarheim sem gefur ásýndinni sterkan karakter. Útfærslan er vönduð í öllum miðlum og allir fletir tala saman, allt frá merkingum á bílum til veggspjalda. Mikil natni er lögð í smáatriði sem auðvelt hefði verið að sleppa en styrkja heildina verulega. Lausnin er bæði praktísk, full af gleði og talar beint til markhópsins.

Silfurverðlaun

Njörður

Sigurður Oddsson
Aton

Or Type – Leturhönnun
Guðmundur Úlfarsson
 – Leturhönnun
Mads Freund Brunse
 – Leturhönnun
Victor Gérard – Leturhönnun
Sigurður Ýmir Kristjánsson – 3D Hreyfihönnun
Guðni Þór Ólafsson – 2D Hreyfihönnun
Kjartan Hreinsson – Ljósmyndir
Magnús Óli Sigurðsson – Portrettljósmyndun

Falleg og lifandi ásýnd þar sem skemmtilegur leikur á sér stað milli flæðandi vatns yfir í harðan málm. Letrið er sterkt einkenni og mótar svip verksins, en yfirbragðið er jafnframt mjúkt. Heildarbragurinn er góður og vel leyst.

Myndlýsingaröð

Gullverðlaun

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Margrét Aðalheiður Þorgeirsdóttir
Sigurður Oddsson
Sigurður Ýmir Kristjánsson
Kolbeinn Jara Hamíðsson
Guðni Þór Ólafsson
Hólmfríður Benediktsdóttir
Aton

Eydís Blöndal — Texta- og hugmyndasmiður
Guðrún Norðfjörð — Verkefnastjóri

Túlkar vel hljóm tónlistar og sýnir hvernig hvert smáatriði í hljómsveit skiptir máli. Lítil smáatriði fléttast saman og mynda fallega og samstæða heild. Þótt byggt sé á klassísku mótífi er úrvinnslan fersk og frumleg. Unnið af vandvirkni og augljós gæði í myndrænni framsetningu.

Silfurverðlaun

Náttúruverndarstofnun

Snorri Eldjárn Snorrason
Viktor Weisshappel Vilhjálmsson
Jakob Hermannsson
Flóki Sigurjónsson
Strik Studio

Verkið virkar afar vel sem heild. Útfærslan er skýr og heildstæð. Samræmið í vinnslunni er augljóst og mótífin eru hæfilega abstrakt, þannig að þau þjóna tilgangi sínum. Traustvekjandi, hlýlegt og fallegt jafnvægi milli þess að vera grafískt og lífrænt.

Silfurverðlaun

Teiknistíll Seðlabanka Íslands

Sóley Ylja A. Bartsch
Atli Sigursveinsson
Magnús Hreggviðsson
Hér&Nú

Umsögn

Myndræn frásögn

Gullverðlaun

Hjartslátturinn hennar Lóu
fyrir Bókabeituna

Lilja Cardew

Kristín Cardew — rithöfundur

Ferskur blær og mikið öryggi í stílnum. Allt er unnið af fagmennsku og í myndunum er sjarmerandi frásagnargleði sem dregur áhorfandann inn í heim verksins. Líf og hreyfing í hverju smáatriði og klippimyndirnar eru afar vel heppnuð viðbót sem smellpassar inn. Mismunandi pappír og áferð styrkja myndmálið og heildarsvipinn.

Opinn flokkur

Gullverðlaun

Viltu kvittun?

Elín Edda Þorsteinsdóttir

Guðrún Brjánsdóttir — samstarfskona

Gjörningur og ljóðverk sem leitast við að vera í beinu samtali við lesendur. Nálgunin á útgáfu er óhefðbundin og fer langt út fyrir form hefðbundinnar bókar. Verkið á sér stað hér og nú og tengist hversdagleikanum á áþreifanlegan hátt. Hvatning til grafískra hönnuða til að miðla efni á fjölbreyttan hátt og stíga inn í hlutverk höfundar.

–

Stakar myndlýsingar

Gullverðlaun

1. maí
fyrir ASÍ

Viktor Weisshappel Vilhjálmsson
Snorri Eldjárn Snorrason
Jakob Hermannsson
Flóki Sigurjónsson
María Guðjohnsen
Strik Studio

Einfalt en um leið afar sterkt. Vísað er í söguna á kraftmikinn og vel heppnaðan máta og notkun á þrívíddarmódeli af gamalli styttu gefur verkinu marglaga sögn. Útkoman er í senn berskjölduð og kraftmikil.

–

Silfurverðlaun

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Margrét Aðalheiður Þorgeirsdóttir
Sigurður Oddsson
Sigurður Ýmir Kristjánsson
Kolbeinn Jara Hamíðsson
Guðni Þór Ólafsson
Hólmfríður Benediktsdóttir
Aton

Eydís Blöndal — Texta- og hugmyndasmiður
Guðrún Norðfjörð — Verkefnastjóri

Myndbyggingin kallast skýrt á við tónlistina. Hugað er að hverju smáatriði, bæði í vali á blómum og í því hvernig þau raðast saman og speglast. Litirnir eru fallegir, dýptin mikil og heildin ber með sér fágun.

Umbúðir og pakkningar

Gullverðlaun

DURA

Þorgeir K. Blöndal
Ísak Einarsson

Sannfærandi og algjörlega á sínum eigin forsendum. Leturmeðferðin er úthugsuð og endurspeglar fagurfræði verksins. Verkið talar inn í ákveðna stefnu og augljóst er að vandað hefur verið til verka. Mikil natni einkennir bæði hönnun letursins og umbúðanna í heild.

Vefsíður

Gullverðlaun

Jökulá – Vefur

Diego Arnanz Garrigós
Julian Ehrenstrasser
Elva Björk Ástþórsdóttir Lee
Jökulá

Skipulagt og áhugavert kaos. Útlitið sprengir rammann á skemmtilegan máta og endurspeglar skýrt það sem stofan stendur fyrir. Lífleg vefsíða sem kraumar af leikgleði og kveikir forvitni með gagnvirkum og óvæntum smáatriðum sem gleðja notandann. Grípandi og heildrænt útlit.

–
Opna vef — jokula.com

Veggspjöld

Silfurverðlaun

Lavaforming

Arnar Freyr Guðmundsson
Birna Geirfinnsdóttir
Studio-Studio

Gullverðlaun

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Margrét Aðalheiður Þorgeirsdóttir
Sigurður Oddsson
Sigurður Ýmir Kristjánsson
Kolbeinn Jara Hamíðsson
Guðni Þór Ólafsson
Hólmfríður Benediktsdóttir
Aton

Eydís Blöndal — Texta- og hugmyndasmiður
Guðrún Norðfjörð — Verkefnastjóri

Framúrskarandi letur og myndmál sem nýtist vel í ólíkum miðlum. Letrið er kraftmikið og hreyfanlegt, afar einkennandi og á vel viði. Sterkt, bæði með og án myndskreytinga.

–

Nemendaflokkur

Gullverðlaun

Eilífðarletur / Perpetual Type

Flóki Sigurjónsson

Verkið veltir upp áleitnum siðferðilegum spurningum um gervigreind og höfundarrétt og setur þær í skýrt samhengi. Á brýnt erindi við samtímann og nánustu framtíð þar sem gervigreindartól verða sífellt aðgengilegri. Viðmót og framsetning afar aðgengileg.

–

Silfurverðlaun

Samansafn íslenskra sérbókstafa

Dagur Eggertsson

Verkefninu er miðlað á skýran og markvissan hátt. Framsetningin er fókus­eruð og efnistök vönduð. Áhugaverð innsýn í vanda sem íslenskir hönnuðir hafa glímt við frá upphafi og nálgunin setur hann í skýrt samhengi.

–

Silfurverðlaun

Watrwöol

Monika Janina Kristjánsdóttir

Hér er sótt í náttúruna á metnaðarfullan, áhugaverðan og yfirgripsmikinn hátt. Sköpunar- og leikgleði skína í gegn og hönnuðurinn leikur sér að efninu. Inntak, efnistök og útfærsla eru samofin í sterka heild.

–
Sækja kynningarpakka
Dagsetning
27. febrúar 2026
Höfundur
Elís Gunnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • FÍT
  • Grein
  • Greinar
  • Grafísk hönnun
  • GREINAR
  • Grafísk hönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200