Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Fjölbreytni, hugvit og nýsköpun einkennandi í úthlutun Hönnunarsjóðs 2026

18. mars 2026

Fjölbreytni, hugvit og nýsköpun eru í forgrunni fyrri úthlutunar Hönnunarsjóðs sem fór fram í hátíðarsal Grósku á Vísindagörðum þann 18. mars 2026.

24 margbreytileg verkefni á sviði hönnunar og arkitektúrs hlutu styrki en alls bárust 142 umsóknir og sótt var um 242 milljónir. 24 verkefni hlutu styrki í þessari fyrri úthlutun ársins. Einnig var 16 ferðastyrkjum úthlutað til 14 verkefna. Alls var 37,9 milljónum króna úthlutað. 

Styrkt verkefni spanna ólík svið og landsvæði. Allt frá því að endurskapa íslensku lopapeysuna og nýta afgangsgler til framleiðslu á ljósum til leturgerðar byggða á handskrift arkitekta fyrri ára.

Tengja nýtir affall hitaveituvatns til upphitunar útihúsgagna í borginni. Með því að endurnýta heitt vatn og umframorku sköpum við hlýlegt umhverfi í miðjum vetrarhörkum. Verkefnið tengir saman sjálfbærni og þægindi í almannarýmum og umbreytir þannig ónýttta orku og býr til nýtilegt umhverfi fyrir borgarbúa.

Fáðu þér kríu er útgáfa vörumerkisins ÆÐUR sem framleiðir vörur úr íslenskum æðardún. Á Hótel Holti á HönnunarMars 2026 fléttast saman fjölbreytt svið hönnunar í skynrænni upplifun þar sem andartakið milli svefns og vöku er grandskoðað með verkum, þátttöku gesta og nýjum vörum.

Að síðustu er vert að nefna verkefnið Tvígrip sem leysir vanda handboltaleikmanna með þróun og hönnun á sérstakri hárspennu fyrir leikmenn. Tvígrip er fyrsta hárspennan sem er sérstaklega hönnuð fyrir notkun í handbolta og öðrum „contact“ íþróttum.

Þetta eru nokkur af þeim áhugaverðu verkefni sem hlutu brautargengi en það er virkilega gaman að sjá öll þau ólíku verkefni sem hönnuðir landsins vinna að en í fjölbreytileikanum sjáum við skýrt hvað hönnun getur verið atvinnu- og verðmætaskapandi og er mikilvægur þáttur þegar kemur að nýsköpun, framleiðslu og menningu.

 „Í hönnun og arkitektúr felast ekki aðeins fagurfræði heldur verðmæti, nýsköpun og framtíðarsýn. Ég er þeirrar skoðunar að framtíð verðmætasköpunar á Íslandi, og um leið velferðar þjóðarinnar, hvíli á því hvernig okkur mun takast að virkja hugvitið með markvissum hætti. Hönnun í öllu sínu litrófi er þar mikilvægur hlekkur. Hlekkur sem þarf að tengja betur við atvinnulífið svo tækifærunum fjölgi. Hönnun er ekki slaufan í lokin - heldur innihald, útlit og allt þar á milli. Virkjum fleiri hönnuði, og fyrr í ferlinu. Höldum fast í forvitni og frumkvæði. Þar er sköpunargleðin.“
Logi Einarsson ráðherra menningar-, nýsköpunar og háskóla

Fjölmenni var á úthlutuninni sem fór fram í Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í Grósku miðvikudaginn 18. mars þar sem Borghildur Sturludóttir formaður stjórnar ávarpaði hópinn og úthlutaði styrkjum.

„Virkjum fagþekkingu og aðferðafræði hönnuða og arkitekta, þvert á samfélagið. Þannig má hafa víðtæk og jákvæð áhrif á þróun og lífsgæði okkar sem hér búa - til framtíðar.
Borghildur Sturludóttir, formaður stjórnar Hönnunarsjóðs

Hér má lesa nánar um verkefnin sem hlutu styrk úr Hönnunarsjóði:

Rannsóknar- og þróunarstyrkir

Veðurdrifinn arkitektúr - s.ap arkitektar - 2.500.000 kr. 

Verkefnið snýst um að hanna byggingar og borgir út frá staðbundnu veðurfari, vindi og snjó. Með vísindalegum greiningum og hermunum sem tengja saman rannsóknir og hönnun er markmiðið að draga úr orkunotkun, minnka losun og minnka áhrif veðurs á hið manngerða umhverfi á tímum loftslagsbreytinga.

Gró: samfélagsrými í gamla Frystihúsinu á Hofsósi - Dorothea Olesen Halldórsdóttir og Herdís Arna Hallgrímsdóttir  - 1.500.000 kr. 

Verkefnið þróar samfélagsrými í gamla Frystihúsinu á Hofsósi og tengir saman staðbundna framleiðslu, samfélag og hönnun. Það rannsakar hvernig hönnun getur virkjað dreifbýlissamfélög í kringum ferskmat og samveru, þróar þekkingu og ferli sem varpa nýrri sýn á hlutverk hönnunar í dreifbýli.

Skrift 1939 - Þorgeir K. Blöndal - 1.500.000 kr. 

Verkefnið tekur fyrir staðlaða handskrift úr grunnteikningum íslenskra arkitekta frá miðri 20. öld. Með aðferðum leturhönnunar er handskriftin skoðuð, greind og túlkuð yfir í stafræna leturgerð. Verkefnið gerir einnig grein fyrir sögu skriftarinnar með gömlum heimildum og nýjum frásögnum.

Korkstafir – Stafastund og lestrarsund - Elín Edda Þorsteinsdóttir og Theresa Himmer - 1.000.000 kr. 

Þróun á stafrófi úr korki fyrir börn sem eru að læra að lesa. Hver stafur er kubbur og er því hægt að stafla og leika sér með stafina. Korkur er umhverfisvænn, eiturefnalaus og eðlisléttur. Stafrófið hvetur til ýmissa aðferða til lærdóms á heimilum, leikskólum, grunnskólum, bókasöfnum og sundlaugum.

Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt. Vatn og vindur, arkitektónískir þættir - Halldóra Arnardóttir, Javier Sánchez Merina og Francisco Jarauta - 1.000.000 kr. 

Rannsóknin fjallar um Sigríði Sigþórsdóttur arkitekt, hvernig hún vinnur með íslenska náttúru með verkum sínum, landslag og umhverfi. Hún tekur afstöðu með byggingalist sinni og tengir hana náttúrunni: „Ef við eyðileggjum náttúruna þá um leið eyðileggjum við það aðdráttarafl sem dregur hana til sín.“

Landslag í biðstöðu - Anna Diljá Sigurðardóttir og Kjartan Óli Guðmundsson - 1.000.000 kr. 

Sýning sem beinir athygli að þremur landsvæðum í biðflokki virkjana - Hamarsdal, Kjalöldu og Héraðsvötnum. Með því að fanga örverur af svæðunum og vinna með lífsferla þeirra verður ósýnilegt líf, vistkerfi og siðferðileg álitamál sýnileg og skynjuð í gegnum upplifun og bragð.

Brot / Fragments - Studio Miklo - 750.000 kr.  

Þróuð er ný vörulína frá Studio Miklo sem byggir á afföllum eigin framleiðslu. Gallaðir hábrenndir leirmunir sem nýtast ekki eftir brennslu eru brotnir niður og nýttir sem megin hráefni í nýjar vörur, þar sem brotin verða sýnilegur hluti af formi og yfirborði.

Samansafn íslenskra sérbókstafa - Dagur Eggertsson - 500.000 kr
Samansafn íslenskra sérbókstafa er bókverk sem fjallar um tímabil á sjöunda áratug 20. aldar í íslenskri prentsögu þar sem lítið sem ekkert aðgengi var að séríslenskum bókstöfum.

Verkefnastyrkir

Tengja - Janek Beau, Katla Taylor, Max Greiner og Tumi Valdimarsson - 3.000.000 kr. 

Tengja nýtir affall hitaveituvatns til upphitunar útihúsgagna í borginni. Með því að endurnýta heitt vatn og umframorku sköpum við hlýlegt umhverfi í miðjum vetrarhörkum. Verkefnið tengir saman sjálfbærni og þægindi í almannarýmum og umbreytir þannig ónýttta uppsprettu orku og býr til nýtilegt umhverfi fyrir borgarbúa.

Vitrum Lighting - Johanna Seelemann - 2.500.000 kr. 

„Vitrum Lighting“ er lína af ljósum sem búin er til úr afgangs og endurnýttu gleri á Íslandi. Með einstakri aðferð er búin til einstök hönnun sem hægt er að nýta áfram með. Vinna er nú þegar hafin í hönnun á lýsingu innandyra og utandyra fyrir íslenskan og erlendan markað.

„árin mæld“ - Steinunn Sigurðardóttir - 2.500.000 kr. 

„árin mæld“ er tilraunakennd heimildarmynd og sýning í Hönnunarsafninu sem fagnar 25 ára afmæli íslenska fyrirtækisins STEiNUNN. Myndin fer inn í heim sem teiknar upp líf á mörkum listar og iðnaðar og er marglaga. Myndin byggir á sögu hönnuðarins, bakgrunni , áskorunum og mikilvægum vendipunktum.

Fáðu þér kríu - Studio Erindrekar - 2.000.000 kr. 

Fáðu þér kríu er útgáfa vörumerkisins ÆÐUR sem framleiðir vörur úr íslenskum æðardún. Á Hótel Holti á HönnunarMars 2026 fléttast saman fjölbreytt svið hönnunar í skynrænni upplifun þar sem andartakið milli svefns og vöku er grandskoðað með verkum, þátttöku gesta og nýjum vörum.

Þæfing 01 - Aníta Hirlekar - 2.000.000 kr. 

Í fatalínunni ÞÆFING-01 vinnur Aníta með þæfingu, einstaka handverksaðferð sem á sér ríka hefð á Íslandi. Markmiðið er að endurvekja hana í nútímalegri hönnun fyrir konur. Línan er framleidd á Íslandi með áherslu á verðmætasköpun og sjálfbærni.

Húsgagnasýningin Náttúruleikmynd í HAKK Gallery - Brynjar Sigurðarson - 2.000.000 kr. 

Náttúruleikmynd er ný húsgagnasýning í HAKK gallerí þar sem húsgögn umbreytast í leikmyndakennda frásögn. Verkefnið rannsakar tengsl nytjahluta, rýmis og náttúrulegra forma með íslensk efni og framleiðslu að leiðarljósi.

Dýpi - Dýpi - 2.000.000 kr. 

Dýpi hefur að markmiði að framleiða fyrstu málninguna sem framleidd verður með vottaðri náttúruafurð, kalkþörungum úr Arnarfirði. Markmiðið er að framleiða hágæða, sjálfbæra og umhverfisvæna málningu sem stuðlar að verndun og endurnýjun náttúrunnar og styður við staðbundna atvinnusköpun.

Tvígrip - Iðunn Lilja Friðriksdóttir - 1.250.000 kr. 

Allar hárspennur sem eru á markaði í dag eru of hættulegar leikmönnum án þess að þurfa teipa yfir þær. Tvígrip er fyrsta hárspennan sem er sérstaklega hönnuð fyrir notkun í handbolta og öðrum "contact" íþróttum.

Myndskýrslur um hönnun og arkitektúr - Rán Flygenring - 1.000.000 kr. 

Fimm myndskýrslur tengdar hönnun og arkitektúr. Fjallað er m.a. um einnota hús og mygluð híbýli, garðrækt, einkabílinn, myrkrið sem auðlind og náttúruhönnun í ferðaþjónustu. Markmiðið er að vekja um spurningar og skapa umræðu meðal hönnuða og almennings um lífsgæði, náttúruna og framtíðina.

HAKK Gallery sýningarárið 2026 - Hakk Gallery - 1.000.000 kr. 

Gallerí sem nærandi, þverfaglegur vettvangur grasrótar hönnunar. Skapandi jarðvegur fyrir sýningar, umræður, sjálfbærni og innlenda smáframleiðslu. Gallerí sem byggir brú til tenginga milli íslenskra hönnuða, erlends fagfólks, framleiðenda og kaupenda ásamt því að undirbyggja ný útflutnings tækifæri

Á þræði - Ása Bríet Brattaberg - 750.000 kr. 

Á þræði er þróunarverkefni í fatahönnun sem endurhugsar íslensku lopapeysuna út frá handverksarfleifð, prjóni og sögulegu samhengi ástandsins. Markmiðið er að þróa samtímalega flík sem sameinar hefðbundið íslenskt handverk og nýja nálgun í efnisvali, formi og frásögn.

Eftir á hyggja til framtíðar - Katrín María Káradóttir - 750.000 kr. 

Verkefnið er að miðla með sýningu, vinnu undanfarinna ára við alþjóðlegt rannsóknarverkefni um þróun sjávarleðurs sem sjálfbærs hráefnis fyrir fataiðnað. Tilgangurinn er að deila helstu niðurstöðum og veita innsýn í vinnuferli sem hefur teygt sig víða um heim en á þó svo djúpar rætur á Íslandi.

Jón og Greta Björnsson – Skreytilist í kirkjum 1933-1981 - Sólrún Ósk Jónsdóttir - 500.000 kr. Rannsókn og ljósmyndun fyrir bók um kirkjuskreytilist Jón og Gretu Björnsson. Kirkjurnar eru á fjórða tug um allt land. Útkoman verður bók með vönduðum ljósmyndum úr kirkjunum ásamt mikilli heimildarvinnu.

Markaðs- og kynningarstyrkir

Híbýlaauður - Úrbanistan - 2.000.000 kr

Híbýlaauður er rannsókna-, viðburða- og útgáfuverkefni spunnið út frá arkitektónískum og hagrænum rannsóknum í samhengi við húsnæðisuppbyggingu á Íslandi. Með því að greina, leiðbeina og hvetja til gæða í íbúðauppbyggingu er markmiðið að skapa híbýlaauð fyrir þá sem búa ekki síður en þá sem byggja.

Saga Pikkoló – Markaðs- og kynningarherferð - Pikkoló - 1.500.000 kr. 

Þróun Pikkoló hefur verið langt og spennandi þverfaglegt hönnunarferli sem tengir saman íslenska hönnun, arkitektúr og nýsköpun á marglaga hátt. Með þessum styrk mun saga Pikkoló vera sögð allt frá hugmynd til þróunar á nýrri þjónustu sem spilar lykilhlutverk í sjálfbærri þróun á matvörumarkaði.

Landsfjórðungahús - Esja Arkitektar - 1.000.000 kr.

Landsfjórðungahús eru hagkvæm, vistvæn, fljótleg og falleg íslensk íbúðarhús. Um er að ræða lítil sérbýli eða fjölbýli byggð á sveigjanlegu einingakerfi sem er færanlegt, aðlögunarhæft að ólíku byggðamynstri og hannað fyrir endurnýtingu og lágt kolefnisspor.

Ferðastyrkir að upphæð 150.000 kr.

  • Sei Studio, rannsóknar- og námsferð, Japan
  • And Anti Matter, rannsóknarferð, Japan
  • URÐ, hitta framleiðendur, Frakkland
  • Logi Pedro, 3daysofdesign, Danmörk
  • Linda Ólafsdóttir, kynning, Kvennafríið; Ég þori! Ég get! Ég vil!, Japan
  • Snæfríð Þorsteins, útgáfa Jördsetning, Svíþjóð
  • Þorgerður Hlöðversdóttir, þátttaka í Nordic Textile Art Annual Meeting, Eistland
  • Theodóra Alfreðsdóttir, þátttaka í 3daysofdesign, Danmörk
  • Arnar Skarphéðinsson, Lavaforming og Coyote Urbanism á Le FIFA, Kanada
  • Hlín Reykdal, Inhorgenta Munich, Þýskaland
  • Hanna Dís Whitehead, þátttaka í Glass (S)elf, Svíþjóð
  • Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir, þátttaka í vinnustofu, Marokkó
  • Tinna Gunnarsdóttir, vinnustofudvöl við Sustainablity Institute, Japan
  • Suskin, framleiðsluferð, Ítalía

Stjórn sjóðsins skipa: Borghildur Sturludóttir, arkitekt, formaður stjórnar og Greipur Gíslason, ráðgjafi, skipuð af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir, fatahönnuður, Þorleifur G. Gíslason, grafískur hönnuður og Ingólfur Freyr Guðmundsson, hönnuður, skipuð af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.

Dagsetning
18. mars 2026
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Hönnunarsjóður
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200