Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Húsfyllir á opnun Samband/Connection í Kaupmannahöfn

12. júní 2023

Fjölmennt var í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn við opnun sýningarinnar Samband/Connection á 3 Days of Design í síðustu viku. Þar er að finna framúrskarandi vörur eftir níu íslenska hönnuði sem eiga það sameiginlegt að hafa hannað vörur sem eru þróaðar, framleiddar og seldar í Skandinavíu. Sýningin er framleidd af Epal í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Íslandsstofu og sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn.

Við opnun sýningarinnar benti Eyjólfur Pálsson, stofnandi Epal, á að skandinavísk hönnun hafi lengi verið uppspretta innblásturs fyrir íslenska hönnuði en nú sé íslensk hönnun komin á það stig að vera sjálf uppspretta innblásturs og virkur hluti af skandinavísku hönnunarsenunni. Þá hafi samnorræn samvinna borið mikinn ávöxt undanfarin ár: „Allir íslensku hönnuðirnir sem sýna hér í dag hafa hannað söluhæstu vörur í samvinnu við skandinavísk hönnunarhús. Fuglinn hans Sigurjóns Pálssonar hefur selst í 600.000 eintökum fyrir Normann Copenhagen, sem er umtalsvert meira en fólk er á Íslandi, og Knotknot hnútapúðinn eftir Ragnheiði Ösp er söluhæstur hjá Design House Stockholm,“ sagði Eyjólfur. 

Skýr hönnunarstefna ber árangur
Eyjólfur benti einnig á að hönnun væri faggrein sem þurfi stuðning á fyrstu stigum til að blómstra í þann nýsköpunariðnað sem skapar mikil verðmæti og gagnast okkur öllum, og þá skipti skýr hönnunarstefna miklu máli: „Dönsk hönnun varð ekki að því öfluga vörumerki sem hún er í dag af sjálfu sér. Frægð hennar hefur dafnað út frá skipulagðri vinnu sem lögð var fram í skýrri hönnunarstefnu danskra yfirvalda. Stefnu sem hefur fært hönnun inn í almannarýmið, í opinberar byggingar, samkomustaði, í sjónvarp og kvikmyndir. Með markvissri vinnu hefur dönsk hönnun orðið að einni öflugustu og verðmætustu menningarafurð landsins.“ 

„Ég hef verið talsmaður og stoltur stuðningsmaður íslenskrar hönnunar í yfir fjóra áratugi. Og í fjóra áratugi hef ég barist fyrir því að íslensk yfirvöld setji sér álíka metnaðarfulla hönnunarstefnu, sem mun vernda, styðja og bæta íslenska hönnun, stuðla að nýsköpun, auka sjálfbærni og bæta líf okkar. Við þurfum líka að sýna það besta af íslenskri hönnun í opinberum byggingum og rýmum, sendiráðum og skólum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Við verðum að sýna og styðja við hönnun. Hönnun snýst ekki bara um fagurfræði. Hún snýst um að leysa vandamál, bæta virkni og skapa lífsgæði. Fyrir einstaklinginn og samfélagið í heild.“

Sýning er opin öllum í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn og stendur til 15. ágúst.

Hér má sjá myndir frá sólríkri opnun frá ljósmyndaranum Hildi Maríu.

Aðstandendur sýningarinnar.

Tengt efni

  • Framlengdur skilafrestur - Samkeppni um nýjan leik - og grunnskóla í Vogabyggð

  • Samband/Connection á 3 days of design

  • FÓLK á 3 days of design

Dagsetning
12. júní 2023
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Vöruhönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200