Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Fögnum framúrskarandi íslenskri hönnun 7. nóvember

3. nóvember 2024

Afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2024 fer fram í Grósku þann 7. nóvember. Fyrir verðlaunaafhendinguna verður sjónum beint að þeim fjölbreyttu verkum sem hljóta tilnefningu í ár og gestum gefst tækifæri til að fá innsýn og taka þátt í samtali um þau. 

Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í þremur verðlaunaflokkum undir heitunum Vara // Staður // Verk. 

Þrjár tilnefningar eru í hverjum flokki og af þeim hlýtur einn sigurvegari í hverjum flokki Hönnunarverðlaun Íslands 2024 sem eru hvoru tveggja heiðurs- og peningaverðlaun. Auk þess verða veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.

Hönnuðir og höfundar tilnefndra verka munu stíga á svið í Grósku og fjalla um verkefnin sín, innblástur, hugmyndir, útkomu og áhrif. Búi Bjarmar Aðalsteinsson vöruhönnuður og Magnea Guðmundsdóttir arkitekt eru kynnar og sjá um að leiða samtal við tilnefnda.

Í kjölfarið fer fram afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2024 ásamt fögnuði og skál.

Dagskrá Hönnunarverðlauna Íslands, fimmtudaginn 7.nóvember 2024

Samtal

15:00 Húsið opnar - Kaffi í boði Kaffitárs

15:30 Innsýn inn í tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

16:30 Kaffihlé

16:50 Innsýn inn í tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

Verðlaunaafhending 

17:30 Fordrykkur

18:00 - 19:30 Afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2024

19:00 Fögnuður og skál 

Þar sem sætafjöldi er takmarkaður biðjum við gesti vinsamlegast að skrá sig hér

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt.  

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu, Samtök iðnaðarins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku og Vísindagarða Háskóla Íslands.

Viðburður á Facebook

Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

Vara

  • James Cook tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

  • Hljómkassar tilnefndir til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

  • Eldgos er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

Staður

  • Kerlingarfjöll Hálendismiðstöð tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

  • Smiðja er tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

  • Þrístapar er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

Verk

  • Börnin að borðinu er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

  • Grímur James Merry eru tilnefndar til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

  • Annarsflokks tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

Dagsetning
3. nóvember 2024
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög
  • Hönnunarverðlaun Íslands

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200